Brósi eins og hann er alltaf kallaður en heitir Þórður og er Þórðarson hefur alltaf verið mikið jólabarn en eftir því sem aldurinn hefur færst yfir hann þá verður hann alltaf meira og meira jólabarn. Hann á heiðurinn af þessu glæsilega jólaþorpi, sem heillar alla, sem koma til hans og fjölskyldunnar og ekki síst barnabörnin, sem elska ekkert meira á aðventunni og um jólin að skoða jólaþorpið hans afa.
„Það fer nóvember í að setja þetta upp og desember að njóta. Það er mikil tónlist og ljósadýrð, sem fylgir þessu þannig að maður má ekki vera of lengi inn í herberginu, þá verður maður pínu ruglaður, sérstaklega ef maður kveikir á öllu í einu,“ segir Brósi hlægjandi.
Vekur þetta ekki alltaf mikla athygli gesta?
„Jú, það eru margir hissa á þessu að ég skuli að vera að standa í svona. Kannski er þetta grái fiðringurinn, það má vera“, segir hann og glottir út í annað.

Þetta er svakalega flott hjá pabba þínum.
„Já þetta er frábært. Þetta er búið að þróast mikið seinustu árin. Þetta var bara smá á ganginum og svo er þetta núna heilt herbergi þannig að það segir okkur að þetta hefur þróast mikið hjá honum í gegnum árin“, segir Íris Diljá, dóttir Brósa og bætir við.
„Þetta var vissulega ekki svona þegar við vorum lítil en þetta er gaman fyrir barnabörnin eins og börnin mín.
„Þetta er svakalega flott og það skemmtilegasta við þetta eru barnabörnin, þau elska þetta. Þau elska ljósin og hljóðin og allt sem jólunum fylgir og jólin eru hátíð barnanna,“ segir Guðrún Hólmfríður Ásvaldsdóttir húsmóðirin á heimilinu, sem segir Brósa eiga allan heiðurinn af jólaþorpinu.
