Eigendur skrái kílómetrastöðu í janúar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. desember 2023 17:48 Eigendur bílanna af þessari gerð þurfa að skrá kílómetersstöðu fyrir 20. janúar 2024. Vísir/Vilhelm Alþingi samþykkti um helgina frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um kílómetragjald á rafmagns, vetnis-og tengiltvinnbíla í flokki fólks- og sendibíla. Fyrsta skráning eigenda á kílómetrastöðu á að fara fram fyrir 20. janúar næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir að bílarnir sem um ræðir hafi áður borið takmarkaðan kostnað af notkun vegakerfisins. Breytingarnar höfðu áður verið kynntar af Bjarna Benediktssyni, þáverandi fjármálaráðherra við kynningu á nýju fjárlagafrumvarpi. Ný nálgun við fjármögnun vegainnviða Í tilkynningu stjórnvalda segir að orkuskipti, minnkandi eldsneytisnotkun og viðvarandi þörf fyrir uppbyggingu vegainnviða kalli á nýja nálgun við fjármögnun til að tryggja greiðar og öruggar samgöngur um allt land. Stefnt sé að innleiðingu nýs, einfaldara og sanngjarnara gjaldtökukerfis á næstu árum sem verði óháð orkugjafa. Gert sé ráð fyrir því að greitt verði almennt kílómetragjald fyrir notkun vegainnviða í stað vörugjalda á bensín og olíugjald. Kolefnisgjald verði áfram greitt fyrir notkun dísilolíu og bensíns vegna þeirra loftlagsáhrifa sem notkun þeirra orkugjafa veldur. Þannig verði unnt að styðja við áframhaldandi uppbyggingu og viðhald vegakerfisins samhliða orkuskiptum til framtíðar. Segir ráðuneytið að aðlögun fjármögnunar vegasamgangna að orkuskiptum fari fram í tveimur áföngum: Árið 2024: Innleiðing kílómetragjalds fyrir notkun rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla í flokki fólks- og sendibifreiða. Kílómetragjaldið verður 6 kr. fyrir rafmagns- og vetnisbíla og 2 kr. fyrir tengiltvinnbíla. Árið 2025: Innleiðing kílómetragjalds vegna notkunar allra ökutækja á vegakerfinu, þ.m.t. dísel- og bensínbíla. Samhliða er gert er ráð fyrir að eldri gjöld á borð við vörugjöld af eldsneyti muni eftir atvikum lækka eða falla niður, þó kolefnisgjald verði áfram greitt. Frumvarp um þetta verður lagt fram á næsta ári. Fyrsta skráning fyrir 20. janúar Þá segir ráðuneytið að kílómetragjaldið verði áætlað og greitt með svipuðum hætti og gjöld fyrir þjónustu veitu- og orkufyrirtækja vegna sölu á heitu vatni og rafmagni. Kílómetragjaldið verður greitt mánaðarlega út frá áætlun um fjölda ekinna kílómetra á tímabilinu. Gjaldtakan verði byggð á akstursáætlun á grundvelli upplýsinga sem eigendur eða umráðamenn bíla skrá inn á Ísland.is, í smáforriti eða á vefsvæði. Einnig verði þó í boði önnur skráningarleið fyrir þá sem ekki geta nýtt sér Ísland.is þar sem heimilt verður að skila upplýsingum og gögnum skriflega til ríkisskattstjóra auk þess sem hægt verður að skrá stöðu akstursmælis hjá faggiltri skoðunarstofu. Á næstunni muni umráðamenn rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla geta með einföldum hætti skráð kílómetrastöðu bíla sinna á Ísland.is þar sem jafnframt verður að finna greinargóðar upplýsingar um ferlið. Fyrsta skráning á kílómetrastöðu eftir upphaf gjaldtöku skal eiga sér stað fyrir 20. janúar 2024. Fyrsti gjalddagi greiðslna vegna gjaldtímabilsins janúar 2024 verður 1. febrúar 2024 og eindagi 14 dögum síðar. Veikt fjármögnun ríkissjóðs Þá segir ráðuneytið í tilkynningu sinni að miklar framfarir í þróun sparneytnari bíla hafi leitt til þess að nýrri bílar geti ekið töluvert fleiri kílómetra á hverjum lítra eldsneytis. Þessi þróun hafi á sama tíma veikt getu ríkissjóðs til að fjármagna viðhald og uppbyggingu vega með sífellt minni tekjum af ökutækjum og eldsneyti, þar sem tekjuöflunin byggist að stórum hluta á föstu gjaldi á hvern lítra eldsneytis. Með lögfestingu kílómetragjalds vegna aksturs rafmagns- vetnis og tengiltvinnbíla sé stigið fyrsta skrefið í átt að nýju einfaldara, gagnsærra og sjálfbærara fyrirkomulagi gjaldtöku af ökutækjum til framtíðar. Samhliða þessu hafi stuðningur stjórnvalda og góðar aðstæður í orkuskiptum skilað Íslandi í fremstu röð í orkuskiptum í vegasamgöngum. Þannig séu rafmagns-og tengiltvinnbílar, sem greiði mjög takmarkað fyrir notkun vega, orðnir tæpur fimmtungur af fólksbílum í umferð. Hlutfall þeirra af nýskráðum fólksbílum á þessu ári sé um 57 prósent en 79 prósent ef frá eru taldar nýskráningar bílaleika. Þá er bent á að leiðbeiningar um skráningu sé að finna á Ísland.is/kilometragjald en fólk getur skráð kílómetersstöðuna undir ökutæki á Mínum síðum Ísland.is og í Ísland.is appinu. Vefsíðan Vegir okkar allra.
Bílar Vistvænir bílar Skattar og tollar Orkuskipti Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Rekstur hins opinbera Fjárlagafrumvarp 2024 Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ Sjá meira