„Reiði og hatur eru oft góð orka“ Sindri Sverrisson skrifar 29. desember 2023 13:02 Víkingar voru vel gíraðir allt síðasta tímabil eftir að hafa horft upp á Blika fagna Íslandsmeistaratitlinum í fyrra. vísir/Hulda Margrét Arnar Gunnlaugsson leyfði leikmönnum sínum ekki að fara heldur lét þá horfa á Blika taka á móti og fagna Íslandsmeistaraskildinum, á Kópavogsvelli fyrir rúmu ári síðan. Þannig vildi hann skapa hvatningu fyrir Víkinga sem í ár urðu svo Íslandsmeistarar með yfirburðum og einnig bikarmeistarar.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þætti sem frumsýndur verður í kvöld, um Íslandsmeistara karla í fótbolta árið 2023. Þátturinn er einn af fjórum sem sýndir eru á Stöð 2 Sport yfir jólin um Íslandmeistaralið karla og kvenna í fótbolta og körfubolta. Brot úr þætti kvöldsins má sjá hér að neðan en þar lýsa Víkingar því hvernig var að horfa á Blika taka við skildinum í fyrra, og hvernig það hjálpaði þeim: „Mér fannst það gríðarlega mikilvægt að þeir fengju að sjá það. Það kemur eitthvað svona sjónrænt í hausinn á þér sem er góð innspýting inn í fríið. Reiði og hatur eru oft góð orka,“ sagði þjálfarinn Arnar, sem áfram verður í brúnni í Víkinni þrátt fyrir að hafa um tíma virst á leiðinni til Norrköping í Svíþjóð. „Það að fara í Kópavoginn og þurfa að horfa á þá lyfta bikarnum var eitt það versta sem maður hefur þurft að þola,“ sagði markahrókurinn Nikolaj Hansen. „Ég held að allir hafi hugsað; „Við ætlum að gera þetta á næsta ári“. Það var talað um það, og svo gerðist það,“ sagði Birnir Snær Ingason, besti maður Íslandsmótsins í ár. „Arnar lét okkur horfa á þetta aftur þegar við byrjuðum næsta tímabil, til að kveikja eld innra með okkur,“ sagði Sölvi Geir Ottesen aðstoðarþjálfari, en brotið úr þættinum má sjá hér að neðan. Þátturinn um Íslandsmeistara Víkings verður frumsýndur klukkan 20.00 í kvöld á Stöð 2 Sport. Klippa: Íslandsmeistarar 2023: Víkingur í Bestu deild karla
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira