De Bruyne: Meiðslin mín kannski lán í óláni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2024 15:31 Kevin De Bruyne í leiknum með Manchester City um helgina. AP/Dave Thompson Kevin De Bruyne lék aftur með Manchester City um helgina þegar liðið vann stórsigur á Huddersfield Town í enska bikarnum.
De Bruyne hefur ekkert verið með á tímabilinu eftir að hafa þurft að gangast undir aðgerð í haust. Hann kom inn á sem varamaður í leiknum og var búinn að leggja upp mark eftir aðeins sautján mínútur. De Bruyne telur að það gæti hafa verið gott fyrir sig og liðið að hann fékk góða hvíld frá boltanum eftir mikið álag undanfarin ár. „Það er ekki eins og ég hafi þurft á fríi að halda en ég nýtti það vel og ákvað að breyta ókosti í kost,“ sagði Kevin De Bruyne sem lítur því á meiðslin sín sem lán í óláni. Manchester City hefur staðið sig vel án hans og þó að liðið sé ekki á toppnum í ensku úrvalsdeildinni þá eru þeir ekki langt á eftir Liverpool. Um leið og Belginn kemur til baka verður því mjög gott lið enn betra. De Bruyne hefur spilað lengi í lykilhlutverki hjá bæði félagsliði og landsliði. Sumrin hafa oft farið í landsliðið og sumarfríin því stutt. „Þegar ég horfi til baka á minn feril þá er ég búinn að spila undanfarin tíu ár án þess að fá mikið frí. Kannski var það gott fyrir mig að fá tíma til að endurstilla mig og gefa mér tíma í mig sjálfan sem annars er ekki hægt yfir tímabilið,“ sagði De Bruyne. „Ég vonaðist til þess að ég geta lagt mikið á mig og komið til baka á góðum nótum og mér finnst ég vera að gera það. Ég þarf samt tíma til að komast í betra leikform,“ sagði De Bruyne.
Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Fótbolti Fleiri fréttir Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Sjá meira