Lífið

Á sjóð­heitu stefnu­móti í pottinum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Þorleifur Örn leikstýrir Eddu sem er til sýninga í Þjóðleikhúsinu.
Þorleifur Örn leikstýrir Eddu sem er til sýninga í Þjóðleikhúsinu. Vísir/Vilhelm

Sundhöll Reykjavíkur er sjóðandi heitur stefnumótastaður og það vita þau Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri og Erna Mist listmálari sem böðuðu sig í heitu vatninu í gær. Um er að ræða eitt nýjasta og heitasta par landsins.

Fleiri fóru á heit stefnumót í gær en reyndar utan landsteinanna. Dorrit Moussaieff fyrrverandi forsetafrú og stórleikarinn Michael Caine snæddu mat á The Ivy Chelsea Garden í London. Dorrit birti mynd af sér með hinum níræða Caine sem óhætt er að segja að sé goðsögn í kvikmyndabransanum.

Þekktir Íslendingar hafa verið á ferð og flugi. Margir stunda líkamsræktina grimmt og Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, betur þekkt sem söngkonan GDRN, skellti sér í World Class í Ögurhvarfi.

Björg Magnúsdóttir, sjónvarpskona og nýráðinn aðstoðarmaður Einars Þorsteinssonar borgarstjóra, endurnýjaði kynnin við Vesturbæinn með heimsókn á Kaffi Vest á þriðjudaginn. Björg bjó lengi í Vesturbænum en hefur flutt sig um set í Reykjavík.

Þar var útvarpsmaðurinn Gunnar Hanson, samstarfsmaður hennar á RÚV, sömuleiðis og trymbillinn Sigtryggur Baldursson. Fá kaffihús komast með tærnar þar sem Kaffi Vest hefur hælana hvað varðar fræga fólkið á Íslandi.

Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri skellti sér í gulu CROCS-skóna sína og pantaði sér hamborgara á Metro í Skeifunni. Handboltakempan Sigurður Valur Sveinsson færði skátunum dósir í gjöf á grenndarstöð í Vogunum. Íslenska karlalandsliðið hefur keppni á morgum og Siggi vill mögulega rýma fyrir dósum sem kunna að tæmast á meðan mótinu stendur.

Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason lætur vætuna í janúar ekki stoppa sig á Hopphjólinu og sást á einu slíku í Hallarmúlanum í vikunni. Ingólfur Þórarinsson veðurguð undirbýr tónleika á Selfossi og hefur safnað kröftum fyrir þá í útlandinu. Hann kom til landsins á föstudaginn en margur Íslendingurinn varði áramótunum í heitara loftslagi.

Lokað hefur verið í Bláfjöllum undanfarna fjóra daga en skíðasvæðið var vel sótt þar á undan. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sjónvarpskona og Haukur Ingi Guðnason verslunareigandi lögðust í það metnaðarfulla verkefni að henda sér með alla krakkana á skíði. Miðað við mynd sem tekin var af hópnum tókst ferðin vel.

Þó vika sé liðin þá er ekki hægt að sleppa því að greina frá vel mönnuðu kvöldi á Apótekinu síðastliðinn fimmtudag. Þar sátu Tinna Aðalbjörnsdóttir, sem starfar við leikaraval og er annar eigandi Ey agency, og Elías Guðmundsson hjá Héðni Kitchen í hrókasamræðum. Þar var líka Jökull Júlíusson söngvari Kaleo ásamt kærustu sinni Telmu Fanneyju Magnúsdóttur í góðra vina hópi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.