Lífið

Myndaveisla: Dagur B fékk við­stadda til að sperra upp eyrun

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fjölmennt var í einni stærstu vísindaferð landsins í Grósku á dögunum.
Fjölmennt var í einni stærstu vísindaferð landsins í Grósku á dögunum.

Um sjö hundruð háskólanemar mættu í eina stærstu vísindaferð landsins til að kynna sér frumkvöðlakeppnina Gulleggið í Grósku á dögunum. KLAK - Icelandic Startups stóð fyrir viðburðinum sem hefur fest sig í sessi meðal eftirsóttustu viðburða hjá nemendum háskóla landsins.

Vísindaferðin hófst með kynningu á frumkvöðlakeppninni Gullegginu í hátíðarsal Grósku þar sem Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups fór yfir framkvæmd keppninar og praktísk atriði varðandi þátttöku.

Dagur B. Eggertsson fráfarandi borgarstjóri hélt tölu og fékk viðstadda til að sperra upp eyrun þegar hann hvatti háskólanema að vera óhrædda að láta drauma sína verða að veruleika og taka stökkið inn í íslenskt sprotasamfélag með þátttöku í Gullegginu en Reykjavíkurborg hefur verið bakhjarl keppninnar til fjölda ára.

Alma Dóra Ríkarðsdóttir, frumkvöðull og meðstofnandi sprotafyrirtækisins HEIMA fór svo yfir ferli HEIMA sem var lítið annað en hugmynd á servíettu þegar hún hlaut Gulleggið árið 2020 en er nú fullbúið smáforrit með tugþúsundir notenda.

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK Dagur B. Eggertsson fráfarandi Borgarstjóri og Alma Dóra Ríkarðsdóttir meðstofnandi HEIMAEygló Gísladóttir

„Við erum gríðarlega stolt af vísindaferðum okkar hjá KLAK - Icelandic Startups en við höfum núna í nokkur ár haldið risa vísindaferðir til að markaðssetja Gulleggið sem hafa fest sig í sessi meðal eftirsóttustu viðburða hjá nemendum háskóla landsins. 

Nú tekur við sjálf hugmyndakeppnin. Við tökum við skráningum í Masterclass Gulleggsins til aðfaranótt laugardagsins, eða til klukkan 23:59 þann 19. janúar en þátttaka í Masterclass er nauðsynleg til að geta sent inn hugmynd í keppnina. 

Markmiðið með Masterclass er að þróa hugmynd og búa til kynningu sem gerir þér kleift að taka næsta skref. Tíu teymi eru valin inn í lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í hátíðarsal Grósku þann 9. febrúar,“ segir Magnús Daði Eyjólfsson, verkefnastjóri Gulleggsins.

Í lok kynningarinnar tróðu tónlistardúettinn, Sprite Zero Klan og Háski, upp og trylltu lýðinn.

Magnús Daði Eyjólfsson verkefnastjóri Gulleggsins og Jenna Björk Guðmundsdóttir verkefnastjóri hjá KLAK - Icelandic StartupsEygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Sprite Zero Klan 2Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.