Spennandi vetur framundan í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Meistaradeild Líflands 23. janúar 2024 09:42 Meistaradeild Líflands 2024 Fyrsta mót af sex í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fer fram fimmtudaginn 25. janúar, í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli.
Á fimmtudaginn næsta munu knapar tefla fram sínum allra bestu hestum í fjórgangi en í fyrra voru það Aðalheiður Anna og Flóvent frá Breiðstöðum sem stóðu uppi sem sigurvegarar með eftirminnilega sýningu og verður spennandi að sjá hvort þau mæti aftur til leiks til að verja titilinn. Aðalheiður Anna stóð uppi sem einstaklings sigurvegari eftir mjög spennandi keppni Í Meistaradeild Líflands eru 7 lið sem tefla fram 3 knöpum af 5 á hverju keppniskvöldi, keppnirnar eru 8 talsins og er ávallt mikil barátta í bæði einstaklings- og liðakeppni. Síðastliðin 3 ár hefur lið Top Reiter sigrað liðakeppnina og í fyrra sigraði Aðalheiður Anna einstaklingskeppnina eftir harða baráttu fram á síðasta sprett við Árna Björn. Lið Top Reiters sigraði liðakeppnina þriðja árið í röð. Konráð valur Sveinsson, Þórdís , Eyrún Ýr Pálsdóttir, Teitur Árnason og Árni Björn Pálsson Keppnin er ein sú allra vinsælasta meðal hestamanna, keppnin er send út um allan heim í beinni útsendingu og á þremur tungumálum, íslensku, ensku og þýsku. Af gefinni reynslu síðustu ára þá fylgjast 5 – 15 þúsund áhorfendur með hverju keppniskvöldi. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum sigruðu fjórganginn nokkuð örugglega í fyrra. Öll keppniskvöld Meistaradeildar Líflands verða aðgengileg á streymisveitu Alendis TV og einnig verður boðið upp á ýmis konar aukaefni tengd deildinni, hægt verður að kaupa áskrift hér. Kaupendur fá þá aðgang að öllu því efni sem Alendis TV hefur tekið upp og sýnt síðustu árin. Gaman er að segja frá því að Fasteignasalarnir Gulla Jóna og Garðar Hólm munu bjóða öllum þeim sem vilja mæta í HorseDay höllina 26. janúar frítt inn, frábærar veitingar verða í boði á staðnum og hægt verður að panta sæti á besta stað og mat í gegnum info@ingolfshvoll.is Í vetur verður lögð mikil áhersla á að taka vel á móti gestum í HorseDay höllinni og boðið verður upp á gott og fjölbreytt úrval af veitingum, fyrir keppni og í hléi ásamt því að sjá bestu hesta og knapa landsins hverju sinni. Klippa: Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Dagskrá vetrarins: 25. janúar - Fjórgangur - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 8. febrúar - Slaktaumatölt - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 29. Febrúar - Fimmgangur - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 15. Mars - Gæðingafimi - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 30. mars - Gæðingaskeið og 150m skeið - 14:00 Selfoss Brávöllum 12.apríl - Tölt og 100 m skeið - 19:00 HorseDay-Höllin Ingólfshvoli - Lokahátið
Hestaíþróttir Hestar Mest lesið Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Lífið Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Bíó og sjónvarp Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Lífið Fleiri fréttir Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira