Tækniframfarir eru ekki náttúruhamfarir Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar 1. febrúar 2024 09:32 Ég er ekki með stúdentspróf og ekki heldur grunnskólapróf. Ég er samt með meistarapróf í lögfræði frá HÍ, af því að þegar ég var lítil var mér kennt að lesa, án truflunar frá algrímisstýrðum samfélags- og andfélagsmiðlum. Ég upplifði bernskuna og var viðstödd æskuna. Ábyrgð á uppeldi hvílir á foreldrum sem eiga að veita börnum sínum tilhlýðilega leiðsögn og hafa með þeim viðeigandi eftirlit. Hlutverk skóla er að mennta börn og að búa þau undir samfélagið. Markmið menntunar er að styðja við heildrænan þroska barna, sem felur í sér samsvarandi kröfu, um að menntun sé búin ákveðnum gæðum eða eiginleikum sem orka á þann veg að vera jákvæður áhrifamáttur þegar kemur að heildrænum þroska barna. Víða er fjallað um vernd, velferð og réttindi barna í íslenskum og alþjóðlegum rétti. Yfirgripsmikil vernd réttinda barna helgast af því þroska- og reynsluleysi sem einkennir börn og veldur því, að þau eiga fremur undir högg að sækja en fullorðnir einstaklingar en, þrátt fyrir að börn séu fjölbreyttur hópur sem innbyrðis hefur ólíkar þarfir, eiga þau sameiginlegt þetta þroska- og reynsluleysi og það er m.a. þess vegna sem við tryggjum vernd barna í ákvæði 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar - af því að börn eiga rétt á að þroskast jafnhliða tilvist sinni. Tengsl þroska og menntunar Hvað er átt við með réttinum til lífs og þroska? Gerast líf og þroski ekki af sjálfu sér og nànast ósjálfrátt, frá því tímamarki sem þú fæðist? Er það ekki fullnægjandi í nútímasamfélagi að börn séu í hreinum fötum, séu ekki svöng, að þau fari ekki upp í bíl með ókunnugum og passi sig á sjónum, á dónakarlinum og klifri ekki upp á nýbyggingar án eftirlits? Með þessari forsjálni, er málið ekki leyst og allir fara í MR? Þegar við sköpum líf og komum með það heim til okkar ber okkur að skapa því frjósaman farveg og tækifæri til vaxtar og þroska. Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna sem hefur eftirlit með framgangi Barnasamningsins í aðildarríkjum gefur stundum út athugasemdir um túlkun einstakra ákvæða hans. Í tengslum við réttinn til lífs og þroska hefur nefndin undirstrikað að markmiðið með menntun barna sé aflvaki heildræns þroska og að börn geti ekki náð heildrænum þroska án þess að rétturinn til menntunar sé tryggður. Í nútímasamfélagi er stafræn tækni allsráðandi sem gerir kröfu um stafræna hæfni í þágu stafrænnar æsku. Stafrænar gjár liggja þvers og kruss um allt, sem aðgreina ekki aðeins kynslóðir frá kynslóðum, heldur heilu svæðin og stéttirnar. Þetta eru börn með greiningu og/eða aðgreiningu? Með tilstyrk persónuupplýsinga, fótspora og algóritma getur nánast hver sem er sem vantar pening, ákvarðað aðgengi barna að stafrænu umhverfi sem m.a. er gert á grundvelli persónueinkenna og veikrar stöðu. Stafræn mismunun er áþreifanleg, sem birtist í því að félagsleg og efnahagsleg uppvaxtarskilyrði sem ekki eru á valdi barna eru samt að bitna á þeim í formi úthlutaðs aðgengis að stafrænu umhverfi. Viðhorfabankinn tekur á móti nýjum viðskiptavinum, börnunum og rennir þeim í endurómunartækinu, inn í best selda bergmálshellinn. Skjávaðahellir er endastöðin þar sem börnunum er hleypt út og þar eru þau skilin eftir og greind í sundur til að máta sig og skilgreina og á þennan máta eru börnum settar misjafnar skorður eftir aðstæðum sínum eða ekki sínum. Skjávaðinn Þriðjungur notenda internetsins á heimsvísu eru börn og þegar kemur að ungmennum sem eru á aldrinum 15-24 ára er notkunarhlutfallið 79%. Í aldurshópi 15-24 ára ungmenna, sem jafnframt tilheyra hátekju-, efri- og millistéttum, er notkunarhlutfallið 95% - sem hlutfallslega er 14% meiri notkun en í öðrum aldurshópum þar sem notkunarhlutfallið er 65%. Stafrænt umhverfi getur framkallað hvata að fjandsemi og friðsemd, að átökum og sáttum en það hvoru megin barnið þitt lendir helst í hendur við aðgengið sem það hefur, sem grundvallað er á algríminu og sem auk menntunar og uppeldis ákvarðar getuna sem barn hefur til að greina upplýsingaumhverfið. Svart eða hvítt - allt eða ekkert. Þegar svona miklar andstæður mætast, skapast jafnan glundroði sem fæðir af sér átök, sem ala af sér gerendur og þolendur, sem orsakar ástand. Ástand sem birtist í því að kennarar og foreldrar komast ekki lengra en það að slökkva elda gærdagsins og ekkert færist áfram, þótt öllu sé reddað og allir eru ómeðvitað á biðlista eftir kulnun. Nýleg rannsókn sem birtist í Journal of Psychiatric Research sýnir sterk tengsl á milli óhóflegs skjátíma barna víðsvegar um Bandaríkin og ýmissa þroska- og hegðunarvandamála. Rannsóknarandlagið voru börn á öllum aldri, frá ungum börnum til stálpaðra unglinga. Ærandi skjávaðinn kristallast í magnþrungnu andvaraleysi og tilgangslausum rifrildum, andsvörum, aðdróttunum, misskilningi og móðgunum - gaslýsingum og smættunum. Samtímis sitja börnin okkar með sætisólar spenntar og glyrnurnar glenntar að lesa þetta sama umhverfi með 60% lesskilning (Pisa, 2023). Algrímið og aðgengið eru farin að gefa sál barnsins þíns að borða og þér líka. Allt sem þið vogið ykkur að smakka verður það sem þið munið alltaf borða. Aðgengi barna að stafrænni tækni þarf að vera ígrundað og endurspegla ásetning um að tryggja lágmarksvernd, jöfn tækifæri og jafna forgjöf. Skilvirkni samfélagsins og samkeppnisstaða krefjast þess. Það er samt ekki nóg að föndra stefnu sem er yfirfull af mælskulsnilld og fögrum fyrirheitum heldur þarf að fylgja henni eftir og innleiða hana efnislega og samþætta inn í allt starf með börnum, af því að þegar mismunun er grundvölluð á efnahags- eða félagslegum breytum hvort sem þær eru tímabundnar eða varanlegar, er uppi málefnalegur forsendubrestur fyrir mismunun. Skjáhrif þurfa að leiða til skjávinnings og það þarf að kenna börnum að færa sér stafræna tækni markvisst í nyt. Öll börn þurfa að hafa aðgang að stafrænni tækni án endurgjalds og aðgengi getur ekki verið misjafnt eftir aðstæðum þeirra, búsetu eða öðrum þáttum. Við þurfum að hafa netvistartíma, sem tryggir að börn sem búa við vanrækslu fái lágmarkssvefn til að vera í stakk búin til að meðtaka menntun morguninn eftir og það er brýnt að við sem samfélag vinnum að því, að móta viðmið og aðferðir sem leiða til frjósamara stafræns umhverfis, umhverfis sem er örvandi og krefjandi. Þetta getur falið í sér að koma þarf á skjálögum en það er samt örugglega betra en að hafa öll þessi börn undir álögum? Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfélagsmiðlar Börn og uppeldi Mest lesið Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Sjá meira
Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun