Valur hafnaði tilboði Breiðabliks í Aron Jó Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. febrúar 2024 17:46 Aron Jóhannsson í leik með Val. Vísir/Hulda Margrét Þrátt fyrir miklar breytingar á þjálfarateymi og leikmannahóp þá er Breiðablik stórhuga fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla. Liðið bauð í Aron Jóhannsson, leikmann Vals, en tilboðinu var hafnað.
Fjölmiðlamaðurinn Hjörvar Hafliðason greindi fyrstur frá því á X-síðu sinni, betur þekkt sem Twitter, að Breiðablik hafi boðið í Aron. Mjög áhugaverðar fréttir úr Bestu deildinni. Blikar hafa lagt fram tilboð í Aron Jóhannsson einn besta leikmann deildarinnar. Þetta er spennandi og miðað við það sem maður heyrir þá er Aron mjög opinn fyrir þvi að skipta úr Val í Breiðablik. pic.twitter.com/9ga7qCyfT1— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) February 5, 2024 Nú hefur Fótbolti.net fengið staðfest að Breiðablik hafi í raun boðið í leikmanninn og að Valur hafi hafnað tilboðinu. Hinn 33 ára gamli Aron er að mestu uppalinn hjá Fjölni hér á landi en lék með Blikum sumarið 2005. Hann lék svo sem atvinnumaður í Danmörku, Hollandi, Þýskalandi, Svíþjóð og Póllandi frá 2010 til 2021. Athygli vakti þegar Aron valdi að spila fyrir landslið Bandaríkjanna en hann er fæddur þar í landi. Á hann að baki 19 leiki fyrir Bandaríkin, þar á meðal leik á HM 2014. Aron hefur verið í lykilhlutverki hjá Val síðan hann gekk í raðir félagsins. Liðið endaði í 2. sæti á síðustu leiktíð á meðan Blikar – sem urðu Íslandsmeistarar 2022 – enduðu í 4. sæti. Samningur Arons rennur út að tímabilinu loknu sem þýðir að hann getur samið við hvaða félag sem á svipuðum tíma og Besta deildin fer á fleygiferð. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fótbolti Íslenski boltinn Breiðablik Valur Besta deild karla Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Willum hrifinn af norska módelinu Sport Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjör og viðtöl: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjör: Stjarnan-Þór/KA 3-2: Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Uppgjörið: Fram - Þór 6-1 | Framarar settu upp sýningu „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Tindastóll mætti ekki til leiks Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjá meira