Melsungen aftur á sigurbraut eftir sigur í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. febrúar 2024 20:45 Elvar Örn Jonsson skoraði fimm fyrir Melsungen. Andreas Gora/picture alliance via Getty Images Elvar Örn Jónsson, Arnar Freyr Arnarsson og félagar í MT Melsungen unnu góðan fimm marka sigur er liðið tók á móti Arnóri Þór Gunnarssyni og félögum hans í Bergischer í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 31-26.
Gestirnir í Bergischer byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu fimm marka forystu í stöðunni 4-9. Heimamenn vöknuðu þá til lífsins og náðu að jafna metin með síðasta marki fyrri hálfleiks og staðan var 14-14 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Liðin skiptust svo á að skora framan af í síðari hálfleik og virtist lítið sem ekkert geta skilið þau að. Heimamenn tóku þó völdin þegar um tíu mínútur voru til leiksloka, skoruðu sex mörk i röð og breyttu stöðunni úr 23-23 í 29-23. Eftir það var aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi enda og heimamenn fögnuðu að lokum fimm marka sigri, 31-26. Elvar Örn Jónsson skoraði fimm mörk fyrir Melsungen og Arnar Freyr bætti tveimur við, en liðið situr nú í fjórða sæti þýsku deildarinnar með 29 stig eftir 21 leik, sjö stigum á eftir toppliði Magdeburg. Arnór Þór komst ekki á blað fyrir Bergischer sem situr í 16. sæti með 13 stig.
Þýski handboltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Sjá meira