Saltblár er litur ársins hjá KitchenAid Heimilistæki 20. febrúar 2024 08:47 Saltblár, litur ársins 2024 er fyrsti litur KitchenAid sem hefur þessa einstöku perluáferð. Þann 8. febrúar síðastliðinn afhjúpaði KitchenAid lit ársins 2024: Blue Salt. Blue Salt eða Saltblár er lillablár litur með hárfínum litaskiptum, rauðleitri perluáferð sem skiptir mjúklega litatónum eftir því hvar ljósið lendir á litnum. „Við hófum vinnu við KitchenAid lit ársins 2024 með gagnasöfnun snemma á árinu 2021,“ er haft eftir Brittni Pertijs, lit-, áferðar- og efnisstjóra hjá Whirlpool. „Hlýir tónar líkt og tveir síðustu KitchenAid litir ársins, Beetroot og Hibiscus, hafa verið svo afgerandi djarfir að við sáum fyrir okkur upprisu kaldari lita á ný. Við vildum að litur ársins 2024 endurspeglaði fjölbreytni litatóna og skynjunar sem finna má í náttúrunni, eins og í loftinu eða sjónum,“ segir Brittni. Litur og hönnun skapa magnaða upplifun „Hjá KitchenAid leitumst við eftir því að skapa magnaða eldhúsupplifun og það byrjar gjarnan með lit og hönnun varanna okkar. Litur ársins 2024 bregður ekki út af vananum að því leitinu til, en hann er fyrsti liturinn okkar sem hefur þessa einstöku perluáferð," segir Chad Reis, Markaðs- og vörumerkjastjóri KitchenAid smátækja „Þetta er ljóslifandi litur sem er vís til þess að brjótast út úr eintóna tilbreytingarleysi eldhússins, innblásinn af því hvernig klípa af salti opnar skilningarvitin og gerir þau móttækilegri fyrir bragðdýptinni. Saltblár er skynáminning um að líta hvern dag í nýju ljósi,“ segir Chad Reis. Í forystu þegar kemur að notkun lita í hönnun Saltblár er sá sjötti í röð KitchenAid lita ársins. KitchenAid hefur verið í forystu fyrir mætti litarins sem drifkrafti til sköpunar frá því að fyrirtækið tilkynnti fyrstu hrærivélalitina árið 1955. Í dag velur vörumerkið lit ársins í takt við strauma og stefnumótun á heimsmælikvarða og sem hvatningu til þess að fanga augnablikið í núinu og veita sköpurum heimsins innblástur. Ástríða í yfir hundrað ár Allt frá því að fyrsta hrærivélin kom á markað árið 1919 og fyrsta uppþvottavélin árið 1949, hefur KitchenAid byggt upp ríka arfleifð heimilistækja sem eru hönnuð fyrir fólk sem hefur ástríðu fyrir eldamennsku. Í dag er hægt að fá nánast öll helstu tæki fyrir nútímaeldhús, allt frá hrærivélinni góðu til kæliskápa. Artisan hrærivélin í litnum Saltblár er væntanleg til helstu söluaðila KitchenAid á Íslandi með vorinu. Til að fá fréttir af öllu því helsta frá KitchenAid á Íslandi er hægt að fylgja þeim á Facebook og á Instagram. Matur Hús og heimili Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Tár eftir hverja sýningu Lífið Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Fleiri fréttir Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira
„
Artisan hrærivélin í litnum Saltblár er væntanleg til helstu söluaðila KitchenAid á Íslandi með vorinu. Til að fá fréttir af öllu því helsta frá KitchenAid á Íslandi er hægt að fylgja þeim á Facebook og á Instagram.
Matur Hús og heimili Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Tár eftir hverja sýningu Lífið Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Fleiri fréttir Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira