Lífið

Ein­stakar ljós­myndir frá tíunda ára­tugnum

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Bragi myndaði marga af þekktustu tónlistarmönnum þjóðarinnar á sínum tíma.
Bragi myndaði marga af þekktustu tónlistarmönnum þjóðarinnar á sínum tíma. Bragi Þór Jósefsson

Snemma á tíunda áratugnum bjó Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari í Súðavogi og var þar einnig með ljósmyndastúdíó. Í næsta húsi var hljóðverið Grjótnáman þar sem margar af þekktustu plötum íslenskrar tónlistarsögu voru teknar upp. Þar tók Bragi meðfylgjandi ljósmyndir þar sem sjá marga af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar.

„Ég átti það til að rekast þar inn þegar eitthvað var í gangi og myndavélin oft með í för. Lét lítið fyrir mér fara og fylgdist með,“ segir Bragi Þór.

Hann náði einstökum myndum, meðal annars af Mezzoforte, Todmobile, Nýdönsk, Sálinni og KK.

Bragi myndaði á sínum tíma hljómsveitina GCD í hljóðveri og plötuumslag fyrstu plötu þeirra.

Plötuumslag GCD.Bragi Þór Jósefsson

„Það var svo stutt að fara þegar þurfti að hóa í formlegri myndatökur fyrir umslagið og hljómsveitin og fylgdarlið löbbuðu sig bara yfir til mín. Bubbi átti auðvitað hugmyndina að taka silhuette af honum og Rúnari og staðhæfði að færi aldrei á milli mála hvor væri hvor. Hann hafði auðvitað rétt fyrir sér þar!“

Hér má sjá Gunna Þórðar í þungum þönkum.Bragi Þór Jósefsson
Rúnar Júlíusson í Grjótnámunni.Bragi Þór Jósefsson
Stund á milli stríða hjá Nýdönsk.Bragi Þór Jósefsson
Sálin að störfum.Bragi Þór Jósefsson
Eyþór Arnalds úr Todmobile.Bragi Þór Jósefsson
Bubbi Morthens tók upp ófáar plötur í Grjótnámunni á sínum tíma.Bragi Þór Jósefsson
Andrea Gylfa í "essinu" sínu.Bragi Þór Jósefsson
Stefán Hilmarsson.Bragi Þór Jósefsson
Plata verður til.Bragi Þór Jósefsson
Bubbi Morthens og Rúnar Júlíusson á góðri stundu.Bragi Þór Jósefsson

Tengdar fréttir

Þegar pönkararnir héngu á Hlemmi

Á níunda áratug síðustu aldar gegndi Hlemmur öðru hlutverki sem samkomustaður en í dag. Þegar skýlið á Hlemmtorgi var opnað á sínum tíma var í fyrsta sinn komið opið almenningsrými á Íslandi, þar sem fólk, óháð stétt og stöðu, gat leitað skjóls. Þar sem nú er mathöll var því fyrr á árum nokkurs konar félagsmiðstöð fyrir einstaklinga sem lifðu utan við og á jaðri samfélagsins.

Þegar Þórscafé var heitasti skemmtistaðurinn í Reykjavík

Veitinga- og skemmtistaðurinn Þórscafé er á meðal langlífustu og vinsælustu skemmtistaða sem hér hafa starfað en saga hans spannaði ríflega hálfa öld. Á tímabili var Þórscafé eini staðurinn í Reykjavík þar sem lifandi tónlist var leikin að staðaldri og flestir af þekktustu tónlistarmönnum og hljómsveitum þjóðarinnar komu þar fram.

Ein­stakar ljós­myndir sýna stemninguna á Kvenna­frí­deginum árið 1975

24. október 1975. Tugir þúsunda íslenskra kvenna ganga út af vinnustöðum sínum og safnast saman á einum stærsta útifundi Íslandssögunnar. Fjölmargir fundir eru haldnir um allt land sem eru einnig vel sóttir. Karlmennirnir sitja eftir og sinna ritstörfum, símavörslu, móttöku og barnagæslu. Kvennafrídagurinn er runninn upp.

Manstu eftir Sæ­dýra­safninu í Hafnar­firði?

„Sædýrasafn hefur verið sett á stofn í Hafnarfirði og verður það opnað næstkomandi fimmtudag. Í safninu eru nú búr sem rúma 52 tonn af vatni og eru nú þegar um 30 tegundir sjávardýra í þeim, þar af 17 fiskategundir.“ Þannig hófst frétt sem birtist í Morgunblaðinu þann 7. maí árið 1969.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.