Lífið

Birkir Bjarna og Sophie orðin for­eldrar

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sophie og Birkir á góðri stundu.
Sophie og Birkir á góðri stundu. INSTAGRAM/@GORDONSOPHIE

Birkir Bjarnason, leikjahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðslins í fótbolta frá upphafi, er orðinn faðir. 

Birkir og kærasta hans, franska fyrirsætan Sophie Gordon, eignuðust dóttur í dag. Frá þessu greinir Birkir sjálfur á Instagram. Um er að ræða fyrsta barn þeirra, og hefur dóttirin þegar fengið nafn: Sofia Lív Birkisdóttir.

Birkir birti þessa færslu í dag.Instagram

Þau Birkir og Sophie búa saman á Ítalíu þar sem Birkir spilar nú með knatt­spyrnu­liðinu Brescia. Birkir hefur raunar leikið á Ítalíu drjúgan hluta síns ferils en hann er leikja­hæsti lands­liðs­maður Ís­lands. Sophie er sem áður sagði fyrirsæta og nokkuð aðsópsmikil sem slík, en henni fylgja ríflega 125 þúsund manns á Instagram.

Parið hefur verið saman um nokkurra ára skeið og hafa þau bæði ferðast og búið víða saman, meðal annars í Tyrk­landi, þar sem þau bjuggu um tveggja ára skeið þar til um mitt síðasta ár. 

Brescia, félag Birkis, óskaði parinu til hamingju á samfélagsmiðlum í dag með svohljóðandi kveðju:

„Hamingjuóskir til mömmunnar Sophie og pabbans Birkis með fæðingu Sofíu litlu Lívar,“

Félag Birkis óskar parinu hér til hamingju.Instagram





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.