Lífið

Prinsinn grínaðist með list­ræna hæfi­leika Katrínar

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Vilhjálmur sló á létta strengi með krökkunum.
Vilhjálmur sló á létta strengi með krökkunum. AP Photo/Frank Augstein, Pool

Vilhjálmur Bretaprins grínaðist með listræna hæfni eiginkonu sinnar Katrínar Middleton þar sem hann heimsótti félagsmiðstöð fyrir ungt fólk í London í fyrradag. Brandarinn vakti mikla athygli enda Katrín nýbúin að eiga við mynd af sér og börnunum sínum.

Fjarvera prinsessunnar af opinberum vettvangi undanfarna mánuði hefur vakið heimsathygli. Hún fór í aðgerð á kviði í janúar og var gefið út að hún myndi ekki snúa aftur til opinberra starfa fyrr en eftir páska. Samsæriskenningar á samfélagsmiðlum fóru á flug eftir að prinsessan birti mynd af sér með börnunum sínum sem var gríðarlega mikið breytt.

Vilhjálmur heimsótti félagsmiðstöðina í vikunni sem ætlað að er að aðstoða krakka í vanda. Þar virti hann fyrir sér skreyttar smákökur og grínaðist með eigin listræna hæfileika. Þeir væru engir.

„Konan mín er sú listræna. Meira að segja börnin mín hafa meiri listræna hæfileika en ég,“ sagði prinsinn. Þess er getið í umfjöllun breska götublaðsins Daily Mail að brandarinn hafi vakið mikla athygli viðstaddra.

Áður hefur komið fram að AFP fréttaveitan beri ekki lengur sama trausts til Kensington hallar og áður. Myndir frá höllinni verða nú í sama flokki og myndir frá stjórnvöldum í Íran og Norður-Kóreu og ljóst er að um gríðarlega álitshnekki er um að ræða.


Tengdar fréttir

Kensington í sama flokki og Íran og Norður-Kórea hjá AFP

Ein stærsta fréttaveita heims, AFP, segist ekki lengur treysta Kensington höll, hirð Vilhjálms og Katrínar af Wales eftir að í ljós kom að átt hafði verið við ljósmynd af Katrínu sem birtist á mæðradag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.