Stjarnan í undanúrslit Lengjubikarsins Smári Jökull Jónsson skrifar 16. mars 2024 17:30 Úr leik Stjörnunnar í Bestu deildinni á síðustu leiktíð. Stjarnan tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum Lengjubikars kvenna í knattspyrnu þegar liðið vann sigur á Þór/KA.
Fyrir leikinn í dag var Þór/KA í efsta sæti B-riðils og nú þegar búið að tryggja sér sæti í undanúrslitum keppninnar. Stjarnan var í þriðja sæti og þurfti sigur til að koma sér uppfyrir lið FH sem var í öðru sæti. Gyða Kristín Gunnarsdóttir kom Stjörnunni yfir úr víti á 23. mínútu en vítið var dæmt þegar brotið var á Huldu Hrund Arnarsdóttur í teig Akureyringa. Á 32. mínútu var komið að Þór/KA að fá víti en þá braut Erin McLeoud markvörður Stjörnunnar á leikmanni Þórs/KA í úthlaupi. Sandra María Jessen jafnaði metin úr vítaspyrnunni og staðan í hálfleik 1-1. Bríet Jóhannsdóttir kom Þór/KA yfir á 63. mínútu með skoti úr teignum þar sem McLeoud í markinu hefði mögulega getað gert betur og vonir Stjörnunnar um sæti í undanúrslitum virtust vera að renna út í sandinn. Þær sneru hins vegar leiknum við strax í kjölfarið á marki Bríetar. Fyrst jafnaði Hulda Hrund metin fyrir eftir frábæran sprett upp völlinn og það var svo Esther Rós Arnarsdóttir sem skoraði sigurmark Stjörnunnar eftir frábæra fyrirgjöf Huldu Hrundar. Lokatölur 3-2 og Stjarnan fer því í undanúrslit Lengjubikarsins ásamt liðum Vals og Breiðabliks.
Lengjubikar kvenna Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Sjá meira