Tvísýn ákvörðun en markaðurinn veðjar á óbreytta vexti enn um sinn
![Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri en peningastefnunefnd bankans fundar þessa dagana vegna vaxtaákvörðunar næstkomandi miðvikudag. Þótt meirihluti sé á þeirri skoðun að vextirnir verði óbreyttir – næsti fundur fer síðan fram 8. maí – þá eru margir sem taka fram að ákvörðunin sé afar tvísýn í þetta sinn.](https://www.visir.is/i/815F75354B4FEF5C31EC2A400DF6A6F587AFAC9E3CD06C87A68384B8C72DB08E_713x0.jpg)
Þrátt fyrir skaplega niðurstöðu í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði vegur þyngra að síðasta verðbólgumæling var slæm, talsvert yfir spám greinenda, og því er erfitt fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans að réttlæta á þessari stundu að hefja vaxtalækkunarferlið, að mati meirihluta markaðsaðila og hagfræðinga í vaxtakönnun Innherja. Aðrir benda á hækkandi raunvaxtastig, skýr merki um kólnun í hagkerfinu og lækkandi verðbólguvæntingar og telja að bankinn muni því fara í varfærna vaxtalækkun í fyrsta sinn frá árslokum 2020.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/6E309B93110DBCF75924CC9234F0A3705CA6C6D02CF3878D8295B8929CBBEE03_308x200.jpg)
Háir raunvextir þrengja að rekstrarumhverfi fyrirtækja næstu misserin
Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka hér á landi er sterk, sem birtist meðal annars í góðu aðgengi þeirra að fjármögnun, en hækkandi raunvextir eru farnir að fara draga úr eftirspurn heimila og fyrirtækja eftir lánsfjármagni, að sögn fjármálastöðugleikanefndar. Hún vekur athygli á því að þyngri greiðslubyrði lána ásamt minnkandi efnahagsumsvifum auki líkur á greiðsluerfiðleikum sem hafi neikvæð áhrif á fjármálastöðugleika.