Lífið

Martin og Anna María eignuðust dreng

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Martin spilar með þýska liðinu Alba Berlín.
Martin spilar með þýska liðinu Alba Berlín. (Photo by Inaki Esnaola/Getty Images)

Martin Hermannsson landsliðsmaður í körfubolta og Anna María Bjarnadóttir eignuðust dreng á dögunum. Um er að ræða þeirra annað barn saman en fyrir eiga þau soninn Manúel fimm ára.

„Besta mamman og stoltur stóri bróðir,“ skrifar Martin og deilir myndum af fjölskyldunni með nýjustu viðbótinni. Martin var viðstaddur fæðinguna í síðustu viku, svo athygli vakti en hann missti  af leik liðs síns Alba Berlin í Þýskalandi gegn franska liðinu Mónakó. 

Hamingjuóskum rignir yfir parið á samfélagsmiliðlinum og hafa tæplega 2000 manns líkað við færsluna.

Martin spilar eins og áður segir með Alba Berlín í Þýskalandi. Þá hefur hann auk þess verið lykilmaður í íslenska karlalandsliðinu í körfuknattleik. 

Martin hafði ekki spilað með íslenska landsliðinu í tvö ár eftir erfið hnémeiðsli en er nú mættur aftur til leiks og var stigahæstur í flottum endurkomusigri á Ungverjum í lok febrúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.