Tjallar héldu uppi stuðinu á Hlíðarenda: „Alveg trylltir“ Valur Páll Eiríksson skrifar 21. mars 2024 15:00 Valsarinn Sindri Rafn Sindrason segir frá kostuglegri reynslu af leik Vals og ÍA í gær hvar Gylfi Þór þreytti frumraun sína. Samsett/Vísir/Hulda/aðsend Fimm Bretar vöktu mikla kátínu á meðal áhorfenda á N1-vellinum við Hlíðarenda í gær þegar Valur mætti ÍA í undanúrslitum Lengjubikarsins. Þeir héldu uppi stemningunni á vellinum og mátti vel heyra í þeim í sjónvarpsútsendingu frá leiknum.
Köll og söngvar heyrðust á vellinum í gær, sem er misalgengt á Hlíðarenda, hvað þá á undirbúningstímabili. „Þegar þeir settust fyrir framan okkur í byrjun leiks og við heyrðum í þeim lætin hugsaði ég: Guð minn góður hvað ég nenni þessu ekki,“ segir Sindri Rafn Sindrason, Valsari og formaður KH, sem var í stúkunni í gær. „Það voru liðnar þrjár mínútur og þeir voru að öskra úr sér lungun.“ Fimm bretar frá Liverpool í stúkunni á Valur - ÍA. This is the semi final of the cup right? Bíða eftir Gylfa. Chanta Sub him off for Gylfi! Sub him off for Gylfi! ef einhver valsmaður missir boltann.— Sindri R. Sindrason (@Sindrason) March 20, 2024 Sindri Rafn sagði sögu af bresku félögunum á samfélagsmiðlinum X í gær en þráðinn má nálgast að ofan. Aðkomumennirnir virtust spenntir fyrir því að sjá Gylfa Sigurðsson og kölluðu ítrekað eftir því að fá hann inn á völlinn. Þá áttuðu þeir sig illa á því af hverju stemningin væri svo lítil í kringum undanúrslitaleik í bikarkeppni. Sindri er oft sagður titlaóður. Hér er hann á góðri stund í Valsheimilinu.Aðsend „Svo voru þeir uppteknir af því að þetta væru undanúrslit í bikarnum. Það var smá snúið að útskýra fyrir þeim hversu lágt skrifaður Lengjubikarinn er, þó þetta sé sannarlega bikar,“ „Þetta var kostulegt dæmi,“ segir Sindri en þeir félagar höfðu leitað lifandi ljósi að miðum á völlinn í aðdragandanum, bara til að komast að því að það væri frítt inn þegar þeir mættu í hálftóma stúkuna á Hlíðarenda. „Þegar brotið var á Valsmanni höfðu þeir gaman að því að rísa allir úr sætum og öskra "Oi ref!" og kölluðu svo mikið á línuvörðinn "Oi, line-o!" „Það var eins og þetta væri Millwall á útivelli. En raunverulega Lengjubikarinn á Hlíðarenda, með svona 60 manns í stúkunni,“ segir Sindri léttur. Klippa: FC Valur köll „Þeir spurðu hver væru svona algeng Valsköll eða -söngvar á vellinum. Það var góð spurning. Ég sagði við þá að það einfalda væri að kalla Valur í sífellu. Þá tóku þeir upp FC Valur. Það var mikil stemning hjá krökkunum og þeim, þeir reyndu að fá þá fullorðnu með sér en það gekk hægt.“ FC Valur komið til að vera „FC VALUR, er eitthvað sem verður chantað í sumar held ég. Krakkarnir voru farnir að taka það upp í gær,“ „Ég myndi segja að þetta hafi sett met í stemningu á undirbúningstímabili, og nánast almennt. Þetta var eins og leikur í september þar sem allt er undir. En í rauninni voru bara fimm Tjallar sem voru alveg trylltir og skildu ekkert af hverju það var ekki meiri stemning á undanúrslitaleik í bikar,“ segir Sindri. Þeir félagar kölluðu einnig reglulega „líva!“ sem þeir öpuðu upp eftir barnahópnum á vellinum. Sindri var snöggur að útskýra fyrir þeim að þarna væri verið að kalla „dýfa!“. Varð framburður þeirra í kjölfarið óaðfinnanlegur í hvert sinn sem Skagamaður féll til jarðar. Þeir fóru þá ekki tómhentir af vellinum en Sindri aðstoðaði þá við að finna trefla í liðsversluninni, sem var þó ekki opin í kringum leikinn. Valur (A) pic.twitter.com/VO5HsEje12— Sam Schneiderman (@SamSchne1derman) March 20, 2024 Fer hringveginn á húsbíl Liam hefur farið á fótboltaleiki víða en kom þó ekki til landsins til að sjá boltann.Aðsend Einn Bretanna fimm sem voru á leiknum í gær er Liam Eagles sem kom þó ekki til landsins í þeim tilgangi að sjá fótbolta. Það var bónus. Hann er ótengdur hinum fjórum sem eru hér saman í skemmtiferð en sat með þeim á vellinum. „Ég lenti í gær og reyni yfirleitt að sjá fótbolta ef ég get. Þetta er 21. landið þar sem ég sé fótboltaleik,“ segir Liam við Vísi. Hann tekur þó litla ábyrgð á látunum, fjórmenningarnir hinir eigi heiðurinn. „Þeir félagar eiga heiður skilinn af stemningunni frekar en ég,“ segir Liam léttur. Hann er mikill ferðamaður og hóf í dag hringferð um landið á húsbíl. „Ég er hjá Þórufossi sem stendur og stefni næst að Glym. Svo verður ferðin norður á bóginn og ég mun gista á Akureyri um helgina og finna skemmtilega hluti á leiðinni. Hringvegurinn verður svo keyrður áfram áður en ég flýg heim eftir helgi,“ segir Liam. Liam Eagles við Þórufoss en hann hefur einnig komið að Skógarfossi og stefnir næst að Glym.Aðsend
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla Lengjubikar karla Valur Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Sjáðu vítakeppnina og mörkin í fyrsta leik Gylfa með Val Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Val urðu að sætta sig við tap í fyrsta keppnisleik hans með liðinu. ÍA vann sigur á Val í vítakeppni og tryggði sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars karla í fótbolta. Nú má sjá mörkin og vítaspynukeppnina úr leiknum inn á Vísi. 21. mars 2024 13:31 Adam hafi nánast þvingað treyjuna upp á Gylfa: „Minn er heiðurinn“ Gylfi Þór Sigurðsson þakkar Adam Ægi Pálssyni fyrir að afhenda sér treyjunúmerið 23 hjá Val. Adam skipti um númer svo Gylfi gæti borið sömu tölu á bakinu og hann gerði á sínum bestu árum hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni. 21. mars 2024 12:01 Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍA 5-6 | Skagamenn unnu eftir vítaspyrnukeppni Skagamenn báru sigurorð af Val þegar liðin áttust við í undanúrslitum Lengjubikars karla í fótbolta á Hlíðarenda í kvöld. Það þurfti vítaspyrnukeppni til þess að útkljá leikinn. 20. mars 2024 20:12 „Þessir tveir mánuðir voru gríðarlega erfiðir“ Gylfi Þór Sigurðsson þreytti frumraun sína með Val gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær. Síðustu mánuðir hafa verið honum strembnir og þá verður skrýtið fyrir hann að vera ekki með landsliðinu í kvöld. 21. mars 2024 08:00 Mest lesið Magnaður McIlroy með stærstu forystu sögunnar Golf Bjarni Guðjóns í garðyrkjuhönskum á opnunarleiknum Fótbolti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Enski boltinn „Tók bara eina snertingu og vissi hvað ég ætlaði að gera“ Sport Björgvins Halldórssonar minnst með einnar mínútu þögn Handbolti Allt í blóma utan vallar en þjálfarinn ekki ánægður með Endrick Fótbolti Dagskráin í dag: Spennan magnast á Masters og boltinn rúllar í DocZone fyrir úrslitakeppnina í körfu Sport Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Íslenski boltinn Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Golf Uppgjör: Stjarnan - KR 104-80 | Stjarnan setti KR á grillið í seinni hálfleik Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina „Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil“ Gylfi Þór klár í að byrja gegn Breiðabliki í kvöld Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Fantasy-deild í loftið: „Eins og Kylie Jenner bjóði þér á date og þú neitir því“ „Algjörlega nauðsynlegt að fá framherja“ Sjáðu upphitunarþátt Stúkunnar í heild Besta-spáin 2026: Þurfa að svara fyrir sig Gylfi missir af upphafsleiknum Heimir Guðjóns mætir FH í bikarnum og KR fer í Garðabæinn Tók málin í sínar eigin hendur: „Svía fíflið þitt“ „Þetta gefur okkur ekkert forskot“ „Vona að þeir haldi í sín gildi og verði svolítið hugrakkir“ Víkingar bjóða börnum undir sextán ára frítt á Blikaleikinn Besta-spáin 2026: Óþreyja í Garðabænum Víkingar efstir en Þórsarar neðstir í spánni 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla „KR er ekkert að fara að slaka á og vera varfærnir“ Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur „Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ „Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Besta-spáin 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Keflvíkingur keppti í Squid Game KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Sjá meira
Sjáðu vítakeppnina og mörkin í fyrsta leik Gylfa með Val Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Val urðu að sætta sig við tap í fyrsta keppnisleik hans með liðinu. ÍA vann sigur á Val í vítakeppni og tryggði sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars karla í fótbolta. Nú má sjá mörkin og vítaspynukeppnina úr leiknum inn á Vísi. 21. mars 2024 13:31
Adam hafi nánast þvingað treyjuna upp á Gylfa: „Minn er heiðurinn“ Gylfi Þór Sigurðsson þakkar Adam Ægi Pálssyni fyrir að afhenda sér treyjunúmerið 23 hjá Val. Adam skipti um númer svo Gylfi gæti borið sömu tölu á bakinu og hann gerði á sínum bestu árum hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni. 21. mars 2024 12:01
Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍA 5-6 | Skagamenn unnu eftir vítaspyrnukeppni Skagamenn báru sigurorð af Val þegar liðin áttust við í undanúrslitum Lengjubikars karla í fótbolta á Hlíðarenda í kvöld. Það þurfti vítaspyrnukeppni til þess að útkljá leikinn. 20. mars 2024 20:12
„Þessir tveir mánuðir voru gríðarlega erfiðir“ Gylfi Þór Sigurðsson þreytti frumraun sína með Val gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær. Síðustu mánuðir hafa verið honum strembnir og þá verður skrýtið fyrir hann að vera ekki með landsliðinu í kvöld. 21. mars 2024 08:00
Dagskráin í dag: Spennan magnast á Masters og boltinn rúllar í DocZone fyrir úrslitakeppnina í körfu Sport
Dagskráin í dag: Spennan magnast á Masters og boltinn rúllar í DocZone fyrir úrslitakeppnina í körfu Sport