Herkvaðningaraldurinn lækkaður úr 27 árum í 25 ár Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. apríl 2024 06:32 Á meðan Úkraínumenn berjast við Rússa á vígvellinum heldur lífið áfram annars staðar í landinu. AP/Vadim Ghirda Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að herkvaðningaraldurinn verði lækkaður úr 27 ára í 25 ára.
Þetta mun auka fjölda þeirra sem stjórnvöld geta skikkað til herskyldu samkvæmt neyðarlögum sem eru í gildi vegna innrásar Rússa. Frumvarpið var samþykkt á þinginu fyrir nærri ári síðan og hefur legið á borði forsetans síðan þá. Það liggur ekki ljóst fyrir hvers vegna forsetinn ákvað að undirrita lögin akkúrat á þessum tímapunkti en vafalítið er um að ræða einn þátt í aðgerðum til að efla herafla landsins. Selenskí hafði áður sagt að hann myndi ekki undirrita lögin nema nauðsyn kræfist. Forsetinn hefur einnig undirritað lög sem kveða á um að þeir sem hafa fengið undanþágu frá herþjónustu á grundvelli heilsufars eða fötlunar gangist undir annað heilsufarsmat og einnig þriðja frumvarpið, sem kveður á um stofnun gagnagrunns yfir þá sem kveða má í herinn. Úkraínuher hefur verið í vandræðum á vígvellinum, meðal annars vegna skorts á skotfærum og vandræðagangi vestanhafs, þar sem Repúblikanar hafa komið í veg fyrir samþykkt fjárhagsaðstoðar Bandaríkjanna til Úkraínu. Selenskí hefur varað við því að Rússar séu að telja í stórsókn á næstu mánuðum og hefur mikið púður verið lagt í að styrkja varnir Úkraínu á víglínunni.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Erlent Fleiri fréttir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Sjá meira