Lífið

Ási selur í­búðina eftir sam­bands­slitin

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ásgrímur Geir hefur innréttað íbúðina á smart og hlýlegan máta.
Ásgrímur Geir hefur innréttað íbúðina á smart og hlýlegan máta.

Ásgrímur Geir Logason, hlaðvarpsstjórnandi Betri helmingsins, hárgreiðslunemi og leikari, hefur sett notalega íbúð sína við Sunnusmára í Kópavogi á sölu. Ásett verð er 89,5 milljónir.

Um er að ræða 113 fermetra íbúð í húsi sem var reist árið 2018. Samtals eru þrjú svefnherbergi og eitt baðherbergi.

Heimili Ása er hlýlegt og smart með fallegum mublum þar sem einfaldleikinn ræður ríkjum.  Nýverið slitnaði upp úr sambandi Ása og Söru Davíðsdóttur flugfreyju og þjálfara eftir nokkurra ára samband.

Nánari upplýsingar um eignina má finna á fasteignavef Vísis.

Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun

Tengdar fréttir

Eltir gamlan draum og lætur skallann ekki stoppa sig

Ásgrímur Geir Logason, leikari og hlaðvarpsstjórnandi Betri Helmingsins, lét gamlan draum rætast þegar hann skráði sig í hárgreiðslunám hjá Hárakademíunni í september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.