Lífið

Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Parið greindi frá þessu á Instagram í dag.
Parið greindi frá þessu á Instagram í dag. Vísir/Samsett

Logi Geirsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta, og Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri Dineout eiga von á barni.

Þetta tilkynna þau í færslu á Instagram í dag. „Við erum spennt að fá þig til okkar 08.08.24,“ skrifar Inga Tinna við færsluna.

Inga Tinna og Logi fóru að stinga saman nefjum í upphafi ársins 2023 og eru sannkallað glæsipar. Bæði hafa getið sér góðs orðs innan sinna starfsgreina. Inga sem frumkvöðull á sviði hugbúnaðarlausna og Logi í handboltanum.

Þetta er fyrsta barn Ingu Tinnu en Logi á tvö með fyrri kærustu.


Tengdar fréttir

Inga Tinna og Logi Geirs nýtt stjörnupar

Inga Tinna Sigurðardóttir stofnandi og framkvæmdarstýra Dineout og Logi Geirsson fyrrum landsliðsmaður í handbolta og einkaþjálfari eru nýtt par.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.