Lífið

Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“

Jón Þór Stefánsson skrifar
Cher er 77 ára gömul og í sambandi við 38 ára gamlan mann.
Cher er 77 ára gömul og í sambandi við 38 ára gamlan mann. EPA

Poppstjarnan Cher gerði gys af einkalífi sínu á dögunum. Tónlistarkonan heimsfræga er orðin 77 ára gömul, en hún á í ástarsambandi við tónlistarframleiðandann Alexander „AE“ Edwards, sem er 38 ára. Þau hafa verið saman frá árinu 2022.

„Ástæðan fyrir því að ég er með yngri mönnum er hreinlega sú að menn á mínum aldri, eða eldri, þeir eru allir látnir,“ sagði Cher í The Jennifer Hudson Show.

Hún gaf þó alvörugefnari skýringu á málinu. „Áður fyrr voru menn á mínum aldri bara skíthræddir við að nálgast mig,“ sagði hún og útskýrði að það ætti ekki við um yngri menn.

„Þeir eru svo djarfir,“ svaraði þáttarstjórnandinn, Jennifer Hudson. 

„Aldir upp af konum eins og mér,“ bætti Cher við.

Fjölmargir miðlar vestanhafs hafa fjallað um þessi ummæli Cher, þar á meðal er fjölmiðillinn Salon sem bendir á að meðaldánaraldur karlmanna í Bandaríkjunum séu 76 ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.