„Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. maí 2024 22:01 Heimir Guðjónsson var að vonum svekktur með niðurstöðu leiks Vísir/Diego Víkingur batt enda á sigurgöngu FH með 2-0 sigri í toppslag deildarinnar í kvöld. Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sagði margt jákvætt hægt að taka úr leiknum en var óánægður með hvernig hans lið brást við þegar Víkingur missti mann af velli. „
Vonbrigði að tapa þessum leik, þurftum ekki að tapa og það voru forsendur fyrir því að vinna en Víkingarnir refsa og þeir eru góðir að fylla teiginn í fyrirgjöfum“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, strax eftir leik. „Stóðum ekki nógu vel þegar við fengum á okkur þessi mörk. Fyrir utan það sköpuðu þeir ekki neitt. Heilt yfir er ég sáttur við FH liðið, nema eftir að við urðum manni fleiri. Þá voru forsendur fyrir. Skipta milli vængja, fá fyrirgjafir, við gerðum það ekki og það voru vonbrigði“ hélt hann svo áfram. Þrátt fyrir tap og slaka frammistöðu manni fleiri er margt jákvætt sem Heimir tekur úr leiknum. Þá sagði hann varnarleik liðsins líta mun betur út en á sama tíma í fyrra. „Mér fannst við að mörgu leyti góðir. En það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það. Við fengum ekkert fyrir en það er framför á liðinu síðan mótið byrjaði. Erum að spila við besta lið Íslands á þeirra heimavelli, getum tekið ýmislegt jákvætt með okkur.“ „Mér finnst hann [varnarleikurinn] betri núna en á sama tíma í fyrra, ég held við séum búnir að fá á okkur 9 mörk í 6 leikjum. Það voru örugglega 12 eða 15 mörk í fyrra“ sagði Heimir að lokum.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík FH Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira