Daðrað við sölu Björn Sævar Einarsson skrifar 17. maí 2024 13:30 Um þessar mundir er mikill þrýstingur frá áfengisiðnaðinum á stjórnvöld um allan heim. Allur sá þrýstingur er á forsendum ítrustu sérhagsmuna áfengisiðnaðarins. Á Íslandi er þrýstingurinn áþreifanlegur. Þrýstingurinn gengur út á að stórauka áfengissölu og knésetja áfengiseinkasölur eins og ÁTVR. Ólöglegar netsölur áfengis hafa sprottið upp hömlulaust eins og forvarnarsamtök hafa ítrekað bent á á sínum heimasíðum s.s. IOGT.is, forvarnir.is, og foreldrasamtok.is. Þetta er gert til að knésetja ÁTVR, sem var stofnað skv. lögum til að a) skilgreina umgjörð um smásölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð, b) að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skaðlegum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu, og c) að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks og takmarka framboð á óæskilegum vörum. Í lögunum er lýðheilsa og samfélagsleg ábyrgð rauði þráðurinn. Róm brennur Netsölurnar selja og afhenda áfengi í smásölu til neytenda þar sem áfengið er afhent af innlendum lager á örfáum mínútum eftir að pantað er, eða sent heim. Fyrirkomulag þetta er augljóst brot á einkarétti ÁTVR til smásölu. Þrátt fyrir kæru ÁTVR hefur lögreglan ekki sinnt þeirri kæru í tæp 4 ár. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, sem ÁTVR heyrir undir, hefur ekkert gert í stöðunni heldur. Róm brennur og stjórnsýslan ypptir öxlum. Eitt nýjasta útspilið í þrýstingnum eru nýir afhendingarstaðir ólöglegra netsala. Til dæmis er fyrirtækið Smáríkið búið að opna þrjár slíkar vínbúðir (store). Þær eru í Árbæ, Fellsmúla og Garðabæ, þar sem neytandi fær sent heim eða nær í áfengið í sömu andrá og pantað er. Opið er alla daga frá kl. 12-23 en til kl. 24 um helgar. Opnunartíminn er einnig þvert á lög. Opnar búðir í ólöglegri samkeppni við ÁTVR. Gert grín að lýðheilsusjónarmiðum Einn þessara stórtæku netsala boðar opnun 1.000 m2 afgreiðsluhúsnæðis í Skeifunni nú í haust í Viðskiptablaðinu og bítur höfuðið af skömminni með því að líkja sölu áfengis við sölu á grænmeti og mjólk! Honum væri nær að lesa bestu alþjóðlegu samantekt vísindarannsókna á helstu áfengisstefnum heims, bókina Alcohol : No ordinary Commodity (Áfengi : Engin venjuleg neysluvara) eftir Babor et al. Þar er lýst að áfengi er engin venjuleg neysluvara. Þar er rakið hvernig sérhagsmunir áfengisiðnaðarins stuðla að vaxandi sjúkdómsbyrði á heimsvísu. Þar er einnig lýst hvaða áfengisstefna er farsælust. Honum væri líka nær að lesa ákall Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem hefur um áratugaskeið lagt til við aðildarþjóðir sínar að unnið verði markvisst að því að draga úr heildarneyslu áfengis, ekki síst með því að takmarka framboð á áfengi, þ.á.m. með ríkiseinkasölu á áfengi. Læknafélag Íslands á þakkir skildar Þá ætti hann að lesa nýja ályktun Læknafélags Íslands (LÍ) sem segir „Ályktun um aðgerðir til að minnka skaðleg áhrif áfengisneyslu í íslensku samfélagi og þar með bæta heilsu og félagslega stöðu einstaklinga, fjölskyldna og samfélagsins alls skorar á alþingismenn að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að minnka skaða af áfengisneyslu, sem sé forgangsverkefni í lýðheilsu Íslendinga. Þar sé stýring á aðgengi að áfengi sterkasta vopnið. Aukið aðgengi að áfengi eins og netverslun og heimsending muni valda enn meiri skaða.“. Skorpulifur í stórsókn Ekki er vanþörf á að læknar upplýsi almenning og beiti sér því áfengi er stór áhættuþáttur fyrir krabbamein samkvæmt rannsóknum. Áfengisdrykkja getur valdið að minnsta kosti sjö mismunandi krabbameinum: Í munni, vélinda, koki, barka, lifur, ristli, endaþarmi og brjóstum. Sigurður Ólafsson, sérfræðingur í meltingar- og lifrarsjúkdómum, skrifaði eftirtektarverða ritstjórnargrein í Læknablaðinu fyrir skömmu þar sem lýst er að skorpulifur sé í stórsókn á Íslandi og að meginorsökin sé aukið aðgengi að áfengi með tilheyrandi neysluaukningu. Þá segir hann „Hér á landi eru lýðheilsusjónarmiðin nú látin víkja. Á undanförnum árum hefur verið rekinn mikill áróður fyrir greiðara aðgengi og meira frelsi í áfengissölu. Alþingismenn leggja stöðugt fram frumvörp sem miða að því að auka framboð og aðgengi að áfengi. Slíkum frumvörpum fylgja gjarnan greinargerðir þar sem tiltekið er að jafnframt skuli lögð aukin áhersla á forvarnir. Það felst æpandi mótsögn í því að vilja vinna að forvörnum en leggja á sama tíma fram frumvörp sem veikja þær forvarnir sem hafa sýnt sig að gera mest gagn!„ Costco er með í geiminu Costco er líka með í þrýstingsgeimi áfengisiðnaðarins. Hjá Costco er áfengið afhent til neytenda rétt hjá afgreiðslukössunum og skyndibitasölunni. Ef fram fer sem horfir kann vítavert ábyrgðaleysi og sofandaháttur stjórnsýslunnar að valda því að fleiri fyrirtæki á matvörumarkaði vilji daðra við áfengissölu í trássi við lög. Elta netsalana og Costco. Þar væri nærtækast að hugsa til Haga sem reka Hagkaup og Bónus. Hagar eru í eigu lífeyrissjóða okkar. Stærstu hluthafar Haga eru Gildi-lífeyrissjóður með 18,54%, LSR A-deild 11,17%, LV 10,37%, Brú Lífeyrissjóður 9,04%, Kaldbakur fjárfestingafélag 7,77%, Birta lífeyrissjóður 7,54%, Festa-lífeyrissjóður 4,54% og Stapi-lífeyrissjóður 3,22% en aðrir lífeyrissjóðir og hluthafar minna. Ábyrgð lífeyrissjóða Lífeyrissjóðir landsmanna segjast upp til hópa vera með ábyrgar fjárfestingar þar sem litið sé til umhverfismála, félagslegra málefna og ábyrgra stjórnarhátta. Auðvelt er að fletta gildum lífeyrissjóðanna upp á netinu. Þeir hafi siðferðisleg viðmið í fjárfestingum, fjárfesti í félögum sem fylgi lögboðnum og góðum stjórnarháttum, fylgi lögum og reglum og gæti að samfélagslegri ábyrgð, umhverfismálum og viðskipasiðferði. Vilji skapa traust á sjóðunum og í starfsemi sjóðanna sé ekki reynt að þræða markalínur þess sem er löglegt. Samfélagsleg ábyrgð er undirstrikuð sérstaklega, en slík ábyrgð er einmitt grunnur stofnunar ÁTVR. Vonandi standa lífeyrissjóðirnir undir gildum sínum. Í þessu samhengi má benda á nágranna okkar, en stærsti lífeyrissjóður Noregs, KLP, setur fjárfestingar í áfengi á svartan lista sem hluta af skuldbindingu sinni um heilsu og ábyrgar fjárfestingar. Þessi stefnumótandi ráðstöfun undirstrikar að sjóðurinn forgangar samfélagslegri velferð og siðferðilegum sjónarmiðum við fjárhagslegar ákvarðanir. Höfundur er formaður IOGT á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi og tóbak Netverslun með áfengi Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun