Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. maí 2024 12:00 David Moyes og Mikel Arteta ræðast við. getty/Justin Setterfield Mikel Arteta og strákarnir hans í Arsenal þurfa að treysta á hjálp frá West Ham United í lokaumferðinni á morgun til að verða Englandsmeistarar.
Arsenal er í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 86 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Manchester City. Í lokaumferðinni á morgun mætir Arsenal Everton á meðan City etur kappi við West Ham. Knattspyrnustjóri West Ham er David Moyes en þeir Arteta þekkjast vel. Spánverjinn lék undir stjórn Skotans hjá Everton á árunum 2005-11. Og nú þarf hann hjálp frá sínum gamla stjóra. „David Moyes hefur verið mikilvægur fyrir ferilinn minn. Ekki bara sem fótboltamaður heldur einnig sem manneskja. Það væri ótrúlegt ef hann gæti hjálpað okkur að upplifa draum minn og okkar að verða Englandsmeistarar og ég gleymi honum aldrei. Það er ljóst,“ sagði Arteta. „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt. Englandsmeistarabikarinn hefur ekki enn komið á Emirates og hann var byggður fyrir næstum tuttugu árum. Það er langur tími. Við verðum að vera bjartsýnir. Ef draumurinn á að rætast verðum við að vinna. Það er ljóst. Svo þurfum við að vonast eftir hjálp frá West Ham til að draumurinn rætist.“ Moyes stýrir West Ham í síðasta sinn í leiknum gegn Arsenal á morgun. Hann hefur þjálfað liðið síðan í árslok 2019.
Enski boltinn Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Fótbolti Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Íslenski boltinn „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Íslenski boltinn „Flott frammistaða miðað við aðstæður“ Fótbolti Fleiri fréttir Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Sjá meira