Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. maí 2024 14:11 Þór/KA hefur unnið fjóra leiki í röð í deild og bikar. vísir/hulda margrét Lið Þórs/KA er komið áfram í átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í fótbolta eftir sigur á Tindastóli, 1-2, í dag. Leikið var á Dalvík.
Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA, hefur verið í miklum ham og skorað í öllum leikjum liðsins á árinu. Hún er til að mynda markahæst í Bestu deildinni með níu mörk í fimm leikjum. Þau undur og stórmerki gerðust í dag að Sandra María skoraði ekki. Hún hafði hins vegar úrslitaáhrif á leikinn því hún lagði upp bæði mörk Þórs/KA. Tindastóll komst yfir á 30. mínútu. Shelby Money, markvörður Þórs/KA, átti þá slæmt útspark beint á Hugrúnu Pálsdóttur. Hún kom boltanum á Jordyn Rhodes sem skoraði eftir skemmtilegan snúning. Gestirnir frá Akureyri voru ekki lengi að jafna sig á þessu því fimm mínútum síðar jöfnuðu þeir. Sandra María sendi boltann þá á Karenu Maríu Sigurgeirsdóttur sem skoraði með góðu skoti upp í fjærhornið. Á lokamínútu fyrri hálfleiks kom svo sigurmark Þórs/KA. Eftir flotta sókn sendi Sandra María á Huldu Ósk Jónsdóttur sem skoraði af öryggi. Fleiri urðu mörkin ekki og Þór/KA fagnaði sigri og sæti í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Mjólkurbikar kvenna Þór Akureyri KA Tindastóll Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira