Nýtt verðmat Marels nokkru lægra en yfirtökutilboð JBT
![Stjórn Marels tilkynnti í apríl að það hefði undirritað samkomulag við JBT um helstu skilmála vegna fyrirhugaðs tilboðs í allt hlutafé íslenska félagsins á verðinu 3,6 evrur á hlut](https://www.visir.is/i/CCB5169B5743E41450CC3F2EEF92A6D5ECE0077702DE16B8967505C2698C091D_713x0.jpg)
Yfirtökutilboð John Bean Technologies er átta prósentum hærra en nýtt verðmat á Marel hljóðar upp á. Jakobsson Capital lækkaði verðmat sitt um níu prósent frá síðasta uppgjöri en fyrsti ársfjórðungur var þungur að mati greinanda; „það mun þurfa að ausa vatni upp úr bátnum til að ná upp í spá“ greiningarfyrirtækisins en gert er ráð fyrir í verðmatinu að rekstur Marel batni hratt á næstu árum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/A823B070E3D3DCCC46352809D596EB9378D9A1615B90D1360BCA8B7376956BB4_308x200.jpg)
Afkoma Marels undir væntingum en jákvæðari tónn meðal viðskiptavina
Afkoma Marels var undir væntingum greinenda á fyrsta ársfjórðungi. Forstjóri Marels sagði á afkomufundi að merkja megi jákvæðari tón á meðal viðskiptavina og að pantanir muni aukast á seinni hluta ársins samhliða bættum markaðsaðstæðum. Marel lækkaði um fjögur prósent í dag.
![](https://www.visir.is/i/90511A751F9326FF6EF8D443800C992CCB5AE95B25456B6B69367A6D5D734101_308x200.jpg)
Umfangsmikil hlutafjárútboð draga „töluvert máttinn“ úr markaðnum
Hlutabréfamarkaðurinn hérlendis hefur verið þungur á meðan flestir markaðir sem horft er til hafa hækkað töluvert. Sjóðstjórar og aðrir markaðsaðilar segja að hlutabréfaverð hérlendis sé almennt nokkuð hagstætt en mikið fjármagn hefur leitað í frumútboð sem hefur dregið kraft úr markaðnum. Viðmælendur Innherja eiga ekki von á því að markaðurinn taki við sér fyrr en verðbólga hjaðnar og stýrivextir fara að lækka.