Greinandi er „ekki sérlega“ bjartsýnn á þjónustutekjur Íslandsbanka í ár
![Jakobsson Capital spáir því að hagnaður Íslandsbanka muni dragast saman í ár og árið 2025 vegna erfiðleika í efnahagslífinu. Í fyrra hagnaðist Íslandsbanki um 24,6 milljarða króna en Jakobsson Capital gerir ráð fyrir að hagnaðurinn verði 23,9 milljarðar króna í ár og 23,2 milljarðar á næsta ári.](https://www.visir.is/i/C0BC7845656FD453F90746C38804156070C9D10C18E2FFE8347EF7628EBAB116_713x0.jpg)
Það mun vera þungur róður í fjárfestingarbankastarfsemi. Jakobsson Capital er „ekki sérlega bjartsýnt“ á þjónustutekjur Íslandsbanka í ár. Uppgjör bankans á fyrsta ársfjórðungi var lítillega undir væntingum greiningarfyrirtækisins að teknu tilliti til einskiptisliðar. Engu að síður er nýtt verðmat mun hærra en markaðsverð.