Minni hömlur á afleiður og aukin markaðssetning myndi auka áhuga erlendis
![Valdimar Ármann, fjárfestingastjóri A/F rekstraraðila, segir´að vaxtamunur laði að fjármagn erlendis frá og virðist nauðsynlegt að hafa hann umtalsverðan til að fá erlenda fjárfesta aftur inn. „Þeir minnkuðu stöður sínar umtalsvert árið 2020, einmitt á þeim tíma þegar vaxtamunur við útlönd fór hratt minnkandi. Það er synd að erlendir fjárfestar krefjast umtalsverðs vaxtamunar fyrir það að eiga íslensk skuldabréf.“](https://www.visir.is/i/5FC8CB7F2CE08F13FEBE9AAD88DC446A0E00EAD5EEB4F196D93701C3AC4AE004_713x0.jpg)
Verði dregið úr takmörkunum á afleiðuviðskiptum með krónu, samhliða markvissri markaðssetningu og aukinni upplýsingagjöf til fjárfesta, má ætla að áhugi erlendra fjárfesta á innlendum skuldabréfamarkaði fari vaxandi, segir fjármálaráðuneytið.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/48CE6BE599D38CFC499C55D4729503EF7DB24378272E561F94BDA01FB5CB3499_308x200.jpg)
Krónan stöðug þrátt fyrir áföll og fátt sem kallar á veikingu á næstunni
Krónan hefur sýnt styrk sinn með því að haldast afar stöðug í kringum gildið 150 á móti evrunni samfellt um margra mánaða skeið þrátt fyrir að ýmislegt hafi unnið á móti henni á liðnum vetri, að sögn gjaldeyrismiðlara. Væntingar eru um gengisstyrkingu horft inn í árið, sem endurspeglast að hluta í meiri framvirki gjaldeyrissölu, samhliða meðal annars mögulegu fjármagnsinnflæði við yfirtökuna á Marel en sumir vara við viðkvæmri stöðu eftir miklar launahækkanir sem hefur þrýst raungenginu á nánast sömu slóðir og fyrir heimsfaraldurinn.
![](https://www.visir.is/i/A636717FBEE6A68FA089610A7A89496757526D44848E500CA49E42BE52FE7FEA_308x200.jpg)
Innflæði í ríkisbréf knúði Seðlabankann í nærri tíu milljarða gjaldeyriskaup
Á fyrstu vikum ársins hafa erlendir fjárfestar bætt við stöðu sína í löngum ríkisbréfum fyrir að lágmarki vel á annan tug milljarða króna. Seðlabankinn réðst í umfangsmikil gjaldeyriskaup síðastliðinn föstudag, þau fyrstu í meira en tuttugu mánuði, til að mæta miklu fjármagnsinnflæði þegar erlendur sjóður keypti stóran hluta alls útboðs ríkisins á óverðtryggðum bréfum.
![](https://www.visir.is/i/723A7F99156A5A6E55F54999E7CF3E94363029157DB015BA00B7F92445C19407_308x200.jpg)
Kaup erlendra sjóða á ríkisbréfum jukust hröðum skrefum undir lok ársins
Erlendir fjárfestar héldu áfram að bæta við stöðu sína í íslenskum ríkisskuldabréfum á síðasta mánuði ársins 2023 eftir að hafa sýnt þeim lítinn áhuga um nokkurt skeið þar á undan. Hlutfallsleg eign þeirra á útistandandi ríkisbréfum jókst þannig um meira en helming á fjórða ársfjórðungi samhliða því að gengi krónunnar hafði gefið nokkuð eftir.
![](https://www.visir.is/i/5FC8CB7F2CE08F13FEBE9AAD88DC446A0E00EAD5EEB4F196D93701C3AC4AE004_308x200.jpg)
Kaup á ríkisbréfum sýnir að háir vextir „eru á radarnum“ hjá erlendum sjóðum
Eftir nánast ekkert innflæði í íslensk ríkisskuldabréf um nokkurt skeið hafa erlendir fjárfestar aukið talsvert við eign sína í slíkum bréfum á síðustu tveimur mánuðum. Kaupin koma á sama tíma og gengi krónunnar hafði veikst skarpt sem gefur til kynna að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum getið virkað sem sveiflujafnari fyrir krónuna, að sögn hagfræðings.
![](https://www.visir.is/i/6EA1297D9FFA503DD890363F63AA85A8CC213414DC771989C1E2CD78FED1C3E1_308x200.jpg)
Hótelrekendur vonast til að sala hrökkvi í gang eftir afbókanir
Allir hótelrekendur finna fyrir því að hægst hefur á bókunum og sala á hótelherbergjum verður eitthvað minni í sumar en í fyrra. Salan gengur betur í Reykjavík og á Suðurlandi en annars staðar úti á landi þar sem hótel hafa brugðið á það ráð að bjóða lægri verð til að ná upp sölunni. Spár um fjölda ferðamanna við upphaf árs munu ekki ganga eftir, segja viðmælendur Innherja.