Kristianstad taplaust í níu leikjum í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júní 2024 15:03 Guðný Árnadóttir stóð vaktina í vörn Kristianstad sem hélt hreinu gegn Häcken. vísir/hulda margrét Allir þrír Íslendingarnir hjá Kristianstad voru í byrjunarliðinu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Häcken í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Guðný Árnadóttir, Katla Tryggvadóttir og Hlín Eiríksdóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad sem hefur staðið sig vel á tímabilinu, því fyrsta í fimmtán ár þar sem Elísabet Gunnarsdóttir er ekki við stjórnvölinn. Hlín hefur verið í miklu stuði að undanförnu en henni tókst ekki að skora í dag, ekki frekar en öðrum leikmönnum á vellinum. Ekki vantaði tækifærin en liðin áttu samtals nítján skot á mark í leiknum. Kristianstad er í 4. sæti deildarinnar með 26 stig. Liðið er taplaust í síðustu níu leikjum. Bryndís Arna Níelsdóttir og Þórdís Elva Ágústsdóttir voru báðar í byrjunarliði Växjö sem laut í lægra haldi fyrir Linköping, 2-1. Bryndís og Þórdís voru teknar af velli í seinni hálfleik. Þetta var þriðja tap Växjö í síðustu fjórum leikjum en liðið er í 10. sæti deildarinnar með fjórtán stig. Þá gerði Örebro markalaust jafntefli við Vittsjö. Katla María Þórðardóttir og Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir voru í byrjunarliði Vittsjö en Bergþóra Sól Ásmundsdóttir sat allan tímann á bekknum. Örebro er í þrettánda og næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins sex stig.
Sænski boltinn Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Körfubolti Hlauparar hópast í nýja íþróttafélagið Hraða Sport Fundu loks arftaka eftir að Arnór samdi við HSÍ Sport Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Enski boltinn „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Goðsögn tekur við og þjálfar son sinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Sjáðu tímamótamark íslenska táningsins eftir „erfiðan“ tíma Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM „Hann var grátandi í hálfleik“ Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Viktor Bjarki skoraði þegar FCK landaði sigri eftir að hann kom inn á Luis Díaz lagði upp tvö þegar Bæjarar tryggðu sér þýska titilinn Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Viðar með stoðsendingu í stórsigri Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Abraham tryggði Aston Villa sigur eftir snilldar viðsnúning hjá Sunderland „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Skoraði fyrsta löglega rangstöðumarkið Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Sjá meira