Ætlaði með allt of ungt barn í ferð og heimtaði endurgreiðslu Árni Sæberg skrifar 3. júlí 2024 11:33 Í úrskurðinum kemur ekki fram í hvers konar ferð hópurinn ætlaði. Hér má sjá alls ótengdan hóp í ferð um þingvelli í fylgd fararstjóra. Vísir/Vilhelm Ferðaþjónustufyrirtæki hefur lúffað fyrir kaupanda sem fór fram á endurgreiðslu gjalds fyrir fimm ára gamalt barn og föður þess, eftir að barninu var neitað um aðgang að ferð. Aldurstakmark í ferðina var átta ár en barnið var aðeins fimm ára.
Þetta kemur fram í úrskurði Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Þar segir að kaupandinn hafi bókað þjónustu ferðaþjónustufyrirtækisins fyrir sig og fimm aðra einstaklinga, sem fól í sér umsjón fyrirtækisins með ferð þann 19. desember 2023. Fyrir ferðina hafi kaupandinn greitt 119 þúsund krónur. Aldurstakmark lá fyrir en óljóst með eftirlitið Í úrskurðinum segir að kaupandinn hafi vísað til þess að hafa í aðdraganda kaupanna innt fyrirtækið eftir því hvort börn gætu tekið þátt í framangreindri ferð en í hópi kaupands hafi meðal annars verið fimm ára drengur. Að sögn kaupanda hafi fyrirtækið upplýst um að aldurtakmark í ferðir væri átta ára. Þá hafi fyrirtækið fullyrt að leiðsögumenn á þess vegum könnuðu ekki sérstaklega aldur barna í ferðum og það væri á ábyrgð foreldra að meta hvort barn þeirra væri fært um að taka þátt. Hafi kaupandinn í kjölfarið ákveðið að panta ferðina einnig fyrir fimm ára drenginn. Vísaði drengnum frá Við upphaf ferðarinnar hafi umræddu barni hins vegar verið meinuð þátttaka af leiðsögumanni hennar. Sökum þessa hafi faðir drengsins jafnframt hætt við þátttöku. Í kjölfarið hafi kaupandinn farið fram á endurgreiðslu vegna feðganna en fyrirtækið aðeins fallist á helmingsendurgreiðslu á greiddu gjaldi vegna þeirra. Kaupandinn telji að fyrirtækið hafi veitt honum rangar upplýsingar í aðdraganda kaupanna og hafi krafist þess í málinu að fá fulla endurgreiðslu á gjaldi vegna tveggja einstaklinga, alls 39.800 krónur. Endurgreiddi þegar nefndinni var blandað í málið Í úrskurðinum segir að Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa kveði upp úrskurði í málum þar sem ágreiningur er til staðar um kaup á vöru eða þjónustu milli neytenda og seljenda. Skilyrði þess að Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa kveði upp úrskurð í ágreiningi milli neytanda og seljanda er að raunverulegur ágreiningur sé til staðar í tengslum við tiltekið réttarsamband málsaðila og að málsaðilar hafi hagsmuni af því að leyst verði úr ágreiningnum. Ferðaþjónustufyrirtækið hafi endurgreitt kaupverðið til kaupandans við meðferð málsins í kjölfar framlagningar kvörtunar kaupandand. Af því leiði að einkaréttarlegur ágreiningur er ekki lengur uppi milli neytanda og seljanda vegna kaupa á vöru eða þjónustu í skilningi laga um úrskurðaraðila á sviði neytendamála. Kröfu kaupandans var því vísað frá nefndinni.
Neytendur Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira