Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Lovísa Arnardóttir skrifar 12. október 2026 10:03 Breyta á opnunartíma á Dalvegi frá og með næstu mánaðamótum. Vísir/Vilhelm Ákveðið hefur verið að breyta opnunartíma endurvinnslustöðva Sorpu á Dalvegi og í Jafnaseli í ljósi þess að móttekið magn á stöðvunum hefur minnkað síðustu mánuði og heimsóknum fyrir hádegi fækkað. Vetraropnun á Dalvegi og í Jafnaseli tekur gildi 1. nóvember 2026.
Yfir vetrarmánuðina, frá og með 16. ágúst til og með 15. maí, verða stöðvarnar opnar frá klukkan 12:00 til 18:30 en yfir sumarið, frá og með 16. maí til og með 15. ágúst, verða stöðvarnar opnar lengur, eða frá 09:00 til 19:00. „Með þessu næst fram hagræði í rekstri stöðvanna, sem gerir SORPU kleift að þjónusta viðskiptavini enn betur á þeim stöðvum þar sem aðsóknin er mest og mestur úrgangur berst,“ segir í tilkynningu frá Sorpu. Skilgreindar sem litlar stöðvar Þar kemur fram að í mars á þessu ári voru stöðvarnar tvær skilgreindar sem litlar endurvinnslustöðvar. Með því að gera það hafi Sorpa getað aukið öryggi, bætt flæði og leiðbeint viðskiptavinum með stærri og þyngri efnisflokka á stórar stöðvar, sérstaklega stöðvarnar við Breiðhellu og Sævarhöfða, nú Lambhagaveg. „Reynslan af rekstri litlu stöðvanna tveggja er góð. Biðtími á þeim er styttri og auðveldara en áður fyrir viðskiptavini að athafna sig þegar þeir losa sig við minni úrgang. Viðskiptavinir sem ekki eru í framkvæmdum hafa margir tekið breytingunum fagnandi og upplifa sig öruggari og velkomnari á stöðvunum en áður,“ segir í tilkynningunni og að frá þessum tíma hafi móttekið magn á stöðvunum dregist saman um 60 prósent og heimsóknum fækkað. Því hafi verið ákveðið að breyta opnunartíma.
Sorpa Sorphirða Reykjavík Kópavogur Neytendur Tengdar fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Borgarstjórn hefur samþykkt að hefja útboð afmarkað sorphirðu við heimili í Breiðholti í tilraunaskyni. Samkvæmt tillögu er gert ráð fyrir því að verkið verði boðið út frá 1. maí 2027 til sex ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára og geti samtals orðið til átta ára. 1. október 2026 23:00 Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, segir það til skoðunar að fara í mál við fólk sem skilur sorp eftir við grenndargáma sem ekki á að fleygja þar. Það varði við lög að skilja rusl eftir á víðavangi og hæsta sekt geti numið einni milljón króna. 24. september 2026 21:00 Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Endurvinnslustöð Sorpu við Sævarhöfða lokar í dag í síðasta sinn. Í stað stöðvarinnar verður opnuð ný stöð við Lambhagaveg og segir samskiptastjóri Sorpu að þrátt fyrir að þjónustan færist fjær ákveðnum hverfum í Reykjavík eigi ferðalagið með ruslið ekki að taka lengri tíma í heild. 30. ágúst 2026 14:18 Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira
Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Borgarstjórn hefur samþykkt að hefja útboð afmarkað sorphirðu við heimili í Breiðholti í tilraunaskyni. Samkvæmt tillögu er gert ráð fyrir því að verkið verði boðið út frá 1. maí 2027 til sex ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára og geti samtals orðið til átta ára. 1. október 2026 23:00
Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, segir það til skoðunar að fara í mál við fólk sem skilur sorp eftir við grenndargáma sem ekki á að fleygja þar. Það varði við lög að skilja rusl eftir á víðavangi og hæsta sekt geti numið einni milljón króna. 24. september 2026 21:00
Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Endurvinnslustöð Sorpu við Sævarhöfða lokar í dag í síðasta sinn. Í stað stöðvarinnar verður opnuð ný stöð við Lambhagaveg og segir samskiptastjóri Sorpu að þrátt fyrir að þjónustan færist fjær ákveðnum hverfum í Reykjavík eigi ferðalagið með ruslið ekki að taka lengri tíma í heild. 30. ágúst 2026 14:18