Munurinn á þjóðerniskennd versus sálernis þarfar upplifun Matthildur Björnsdóttir skrifar 16. júlí 2024 10:01 Er veruleiki sem er að koma æ meira í ljós í einstaklingum í dag. Sú tilfinning hefur hugsanlega verið til um aldir. En kemur meira í ljós á tímum auðveldari ferðalaga og upplifunar á öðrum löndum sem og háttum. Þjóðerniskennd og hollusta var það sem stjórnmála lið börðu inn í hugi þjóða til að halda þeim sem fæddust þar sem lengst. Og það séð sem mikil dyggð að vera trúr þeim áhrifum. Sú tilfinning er auðvitað enn í mörgum einstaklingum allra þjóða. Þegar sumir upplifa þá þörf og þrá, að sjá og lifa við það sem er í gangi í öðrum löndum og þjóðum. Það er líka á hreinu að það eru Íslendingar á landinu, sem gætu aldrei hugsað sér að búa eða vera annarsstaðar í heiminum, þó að sum þeirra fari í heimsókn til annars lands til að fá meiri sól. Ég hef átt tjáskipti við einstaklinga sem eru mjög trygg þessu þjóðerni. Ég sé það svo á annan hátt í þeim sem hafa flutt til Íslands og eru ástfangin upp yfir höfuð að vera þar. Þá hugsar þessi, núna 77 ára kona, sem flutti til Ástralíu fyrir 37 árum: Hvernig munu þau elska snjóinn, langa dimma vetur og allskonar erfið veður þegar götur fyllast af snjó sem svo frýs. Það rignir og vindur blæs, sem gerir það erfitt að standa uppréttur á hálkunni frá hinum óþiðna ís undir. Líkami minn fékk nóg af því að detta og oft á bakið. Svo er það að tröppur fyllast af snjó sem maður verður að moka burtséð frá tíma á leið til vinnu, svo ekki sé gleymt að nefna, að ytri hurðarkarmur í kjallaraíbúð minni fylltist af snjó í vissri vindátt. Það er fyndið að heyra Ástrala hér sjá snjó í rómantísku ljósi. Það er af því að þau hafa bara séð hann á myndum. Þá gerir hann landslagið svo hvítt og fallegt eins og það sé sakleysið eitt. Og lýsir upp umhverfið. Þá fer ég oft í að sýna veruleika hliðina, og segi að alla vega fyrir mig sé snjór bara það fyrir að fara á skíði. Ég veit um Ástrala á Íslandi sem hafa ekki haft neitt af því í fæðingarlandinu en alla vega einn þeirra hefur kvartað minna yfir veðrinu en konan hans, sem er fædd á Íslandi. Hún lifði í mörg ár við snjóleysi og öruggar göngugötur hér. Það sé ég að það sé þörf sálarinnar að breyta til og þurfa víðáttumeiri upplifun en var í boði í fæðingarlandinu, og myndi eiga við einstaklinga frá ótal öðrum löndum og þjóðum heims. Þá er ég ekki að tala um einstaklinga sem neyðast til að flýja land sitt. Það er annarskonar dæmi. Af því að ekki nærri allir sem neyðast til að flýja hafa þráð að fara í burtu en stríð og náttúruhamfarir neyðir þau til þess. Svo veit ég um mannveru sem ég hitti á útihátíð hér. Ég fékk einskonar hugsanaflutnings skilaboð inn í heilann að hefði átt fyrra líf á Íslandi fyrir löngu síðan, sem staðfestist frekar með hver áhugamál hans væru. Þetta skilaboð hreinlega gaf honum það síðasta atriði. Svo fór hann að skipuleggja ferð til Íslands, til að sjá hvernig upplifunin yrði að koma til landsins eftir öll þessi ár. Sálir ferðast frá einum líkama til annars sumar fljótlega aðrar eftir langa dvöl þarna úti Ég skildi aldrei Íslenska orðið endurholdgun á meðan ég var á landinu. Þar sem það virtist gefa í skyn að sálin færi í sama gamla líkamann aftur. Það stóðst ekki. Hvernig blési neinn líf í lík í jörðu sem væri að molna niður. Svo að ég sleppti að hugsa um það. Nokkrum árum eftir að koma hingað gerðist það, að eftir að fara í hreinsun á orkuhjúpum mínum, sem og að losa mig við áhrif frá neikvæðum skilaboðum til mín sem mannveru, opnaðist nýr heimur. Sem var um að fá innsýn til að vita og fá þá upplifun að það er sálin sem kemur og fer inn og út úr líkömum á ferð sinni til þroska. Þaðan er veruleikinn um nýjar sálir, ungar sálir, þroskaðar sálir og gamlar sálir. Það er ekki um að trúa því í blindni.Mannverur verða að ná að vita, finna og sjá að þær eru ekki tóm bók þegar þær koma í þann líkama. Þær hafa veganesti lífsreynslu í sálarhólfi þess sem hafði verið í öðrum líkama. Eins og var með mig um árið semhafði ekki neina þessa lífs minningu um né hafa séð Bretland. En þegar við fórum þangað árið 2000 var allt svæðið í kring um flugvöllinn svo kunnuglegt, ég þekkti það svæði, hafði verið þar. En í öðrum líkama. Það segir mér að einstaklingar hafi upplifað til dæmis borg sem þau hafi ekki komið til í þessu lífi vera mjög kunnuglega. Þau einhvern veginn þekkja hana út og inn. Sem er frá því sem sálin geymir í því sem ég kalla lífsreynslu pokann. Svo eru alla vega margir einnig með hinn hluta sálar þar sem óunnin verkefni eru og ógrædd sálar og tilfinningaleg sár. Það var einstakt að vitna Nelson Mandela sem var alla vega eldri sál tala. Og ekki síst þegar hann og Desmond Tutu fóru í það að láta fanga horfast í augu við þá sem þeir höfðu framið glæp gegn. Það var magnað af því að þá er orkan í vinnslu og getur hraðað nýjum skilningi í hugum fanga. Og alla vega stundum einnig hugum þolenda. Þarna voru eldri sálir með nægt innsæi frá sér til að skilja mikilvægi slíks alla vega í mörgum tilfellum. Og engin læti né mótmæli urðu. Ég er nógu gömul til að hafa verið á landinu þegar þjóðin var mun fámennari og tilfinning mín um þá tíma er að að svo mörgu leyti var það eins ansi rækilega rammað inn hvað varðaði verðgildi og viðhorf til tjáninga og gegn tilfinningum og tilfinningasemi. Þjóðar kröfur um þöggun voru um svo margt sem ég er ekki sú eina um að vera að tjá það opinberlega núna. Það er svo mjög sérkennilega ánægjulegt að lesa tjáskipti innflytjenda síðustu árin sem hafa séð Ísland sem land sitt og fólkið sem sína þjóð, verði og séu sum þegar komin með sterka þjóðerniskennd fyrir land og þjóð. Sem er af því að það er það sem sál þeirra kallar þau til að lifa. Sumir eins og ég les í blöðunum, faraí að upplifa að búa í landi í nokkur ár og flytja sig svo til þess næsta og áfram til fleiri landa. Burtséð hvort þau séu endilega að ætla að festa rætur í nýju landi, eða ekki? Ég sé það sem mikið námskeið fyrir huga og sál sem ég þekki af eigin reynslu, og að það sem þau læri í hverju landi verði veganesti sálna þeirra áfram í þessu lífi eða þeim næstu. Ég fékk athyglisverða innsýn í þetta með sálir og val á foreldri. Það var ung tvíkynhneigð kona á bekknum, svo skynjaði ég sál sem yrði drengur höfrandi yfir henni, sem þráði að hún myndi bjóða sér inn. Ég spurði hana þá hvort hún myndi vilja verða móðir? Hún sagði já, ef kringumstæðurnar breyttust. Það hlýtur að hafa verið þrýstingur frá þessari sál sem ég talaði ekki um þannig. Égmyndi aldrei segja neinum að þau verði að verða foreldrar. Það er atriði sem hver mannvera á að finna innan frá í sér að eigi að gerast. Hún sendi mér svo bréf þar sem hún sagði að hún hafði endað sambandið og hefði hitt mann í þeirri borg sem hún kom frá, og væri barnshafandi. Svo sendi hún mér mynd af sér og barninu, sem sýndi á hreinu að það var sálin sem vildi hana sem móður. Svo var önnur kona sem kom á bekkinn, að segja mér að hún þrái að fá börn. Þá komu þær upplýsingar: Að jú, hún muni fá þau, en það verði ekki strax. Ég lærði svo seinna að þau komu. Það var og er mjög líklegt að vera vegna tengsla við viðkomandi í fyrra lífi. En ég tel að það séu líka milljónir einstaklinga á jörðu sem skutust inn í leg kvenna um aldir sem boðflennur þar. Og ekki allar sálir það ánægðar með foreldrana. Auðvitað eru líka milljónir einstaklinga sem hafa fengið foreldra sem þau voru sæl með. Og foreldrar börn sem þau voru og eru alsæl að hafa fengið. Þessi tvö atriði Þjóðerni versus Sálerni(orð sem ég kom upp með) er það semer að hreyfa mannkyn til á þessari miklu jörð okkar og það ábyggilega mest til góðs. Þó að við sjáum og vitum að skaparinn skaffar allt heila klabbið. Það er enginn Guð barnapía þarna úti. Það er okkar hlutverk að sýna mannúðina. Höfundur er Íslendingur sem hefur verið búsettur til langs tíma í Ástralíu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Skilaboð til heimsins: Við megum vera vond við börn Jón Kalman Stefánsson Skoðun Hversu mikið af regluverki Evrópusambandsins hefur verið tekið upp í íslenskan rétt? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers eiga íbúar efri byggða að gjalda? Helga Jónsdóttir Skoðun Það sést hvar Sjálfstæðisflokkurinn stjórnar Guðni Freyr Öfjörð Úlfarsson Skoðun Hvað er raunverulega hollt mataræði? Anna Lind Fells Skoðun Gamblað með göng og líf lögð undir Eyjólfur Þorkelsson Skoðun Ekki vera sjálfsafgreiðslukassi! Þorsteinn Valdimarsson Skoðun Flotinn sem hvarf: Líflína Íslands undir erlendum fánum Sólrún H.G. Proppé Skoðun Þegar þjóð reis upp og mótmælti kröftuglega – en hvað gerðist svo? Hörður Torfason Skoðun Að venja barn af bleyju Elín Erna Steinarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Röskva vill sjá hjúkrunarfræðinga á sjúkrabíl og meiri nýsköpun í námi Dagbjört Lára Bjarkadóttir,Ríkharður Daði Ólafsson skrifar Skoðun Hvað er raunverulega hollt mataræði? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Sykursýki 2 orðin að heimsfaraldri Anna Lind Fells skrifar Skoðun Áhættustjórnun í fiskeldi Otto Færovik skrifar Skoðun Gamblað með göng og líf lögð undir Eyjólfur Þorkelsson skrifar Skoðun Að venja barn af bleyju Elín Erna Steinarsdóttir skrifar Skoðun Jarðsagan og loftslagsbreytingar Brynhildur Magnúsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til heimsins: Við megum vera vond við börn Jón Kalman Stefánsson skrifar Skoðun Þegar þjóð reis upp og mótmælti kröftuglega – en hvað gerðist svo? Hörður Torfason skrifar Skoðun Heimilin og orkuskiptin í forgang á raforkumarkaði Dagný Halldórsdóttir,Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Hversu mikið af regluverki Evrópusambandsins hefur verið tekið upp í íslenskan rétt? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Verðtryggður Seðlabankastjóri Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Óskað er eftir forystu í efnahagslegum þrengingum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Ekki vera sjálfsafgreiðslukassi! Þorsteinn Valdimarsson skrifar Skoðun Flotinn sem hvarf: Líflína Íslands undir erlendum fánum Sólrún H.G. Proppé skrifar Skoðun Hvers eiga íbúar efri byggða að gjalda? Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Viska og FÍN byggja óhagnaðardrifið húsnæði fyrir háskólamenntaða Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Af hverju óttast sumir og hafa andúð á flóttamönnum og innflytjendum? Tilgáta: Fólk óttast sig sjálft...... Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Hver er stefna sveitarfélaga í menningar- og safnamálum? Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar Skoðun Menningarhús og framtíð safna í Skagafirði – um hvað snýst málið í raun? Berglind Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver er málsvari dýranna? Hrönn Ólína Jörundsdóttir skrifar Skoðun Það sést hvar Sjálfstæðisflokkurinn stjórnar Guðni Freyr Öfjörð Úlfarsson skrifar Skoðun Hefðu bændur riðið í bæinn til að mótmæla Borgarlínunni? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Forgangsröðun í öldrunarþjónustu Margrét Guðnadóttir skrifar Skoðun Af hverju skipta félagasamtök máli – og langtíma fjármögnunin öllu? Eva Rós Ólafsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eiga Íslendingar að vera stikkfrí í eigin vörnum Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkur sem er ekki hægt að taka alvarlega Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafró fer yfir eigin lokapróf og fær glimrandi einkunn Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Kvótinn: Þriðji valkosturinn Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hamingja og fjármálalæsi haldast í hendur Gústaf Steingrímsson skrifar Sjá meira
Hversu mikið af regluverki Evrópusambandsins hefur verið tekið upp í íslenskan rétt? Gunnar Ármannsson Skoðun
Skoðun Röskva vill sjá hjúkrunarfræðinga á sjúkrabíl og meiri nýsköpun í námi Dagbjört Lára Bjarkadóttir,Ríkharður Daði Ólafsson skrifar
Skoðun Heimilin og orkuskiptin í forgang á raforkumarkaði Dagný Halldórsdóttir,Tryggvi Felixson skrifar
Skoðun Hversu mikið af regluverki Evrópusambandsins hefur verið tekið upp í íslenskan rétt? Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Viska og FÍN byggja óhagnaðardrifið húsnæði fyrir háskólamenntaða Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Af hverju óttast sumir og hafa andúð á flóttamönnum og innflytjendum? Tilgáta: Fólk óttast sig sjálft...... Gunnar Björgvinsson skrifar
Skoðun Menningarhús og framtíð safna í Skagafirði – um hvað snýst málið í raun? Berglind Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju skipta félagasamtök máli – og langtíma fjármögnunin öllu? Eva Rós Ólafsdóttir skrifar
Hversu mikið af regluverki Evrópusambandsins hefur verið tekið upp í íslenskan rétt? Gunnar Ármannsson Skoðun