Kári vandar um við heimsfrægan rithöfundinn Jakob Bjarnar skrifar 23. júlí 2024 10:56 Matt Ridley var hér við veiðar og notaði tækifærið, hélt fyrirlestur og rabbaði við blaðamenn. Hann þykir marktækur en Kári Stefánsson er ekki hrifinn. vísir/x/Vilhelm Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er ekki hrifinn af kenningum Matt Ridleys, blaðamanns og rithöfundar, sem hefur verið hér á landi við veiðar og notaði tækifærið og viðraði kenningar sínar.
Ridley hefur skrifað bók sem hefur vakið mikla athygli og fjallar um uppruna Covid 19 í samvinnu við vísindamanninn Alinu Chan. Þar telja þau allar líkur benda til þess að SARS-Cov-„ hafi átti uppruna sinn að rekja til rannsóknarstofu í Wuhan fremur en að hana megi rekja frá dýrum; að leðurblaka hafi á dularfullan hátt komið þessu í mannskepnuna. Eins og orsakatengsl milli fífils og stjórnmálaskoðana Hannesar Meðal þeirra sem hafa rætt þetta ítarlega við Ridley er Snorri Másson hlaðvarpsstjóri og má sjá viðtalið hér neðar. Snorri játar á sig að hafa verið fulltrúi viðtekinna viðhorfa þegar hann vann á hefðbundnum miðlum en nú séu augu hans tekin að opnast fyrir öðrum möguleikum. Snorri segir Matt Ridley þekktan rithöfund, hann sé meðal annars fyrrverandi þingmaður breska íhaldsflokksins, ýmsislegt annað megi telja honum til tekna og að hann sé vel marktækur. Hann hafi meðal annars verið í viðtali hjá Jordan Peterson og sé það fimmta mest á horfða viðtal Petersons. Kári er hins vegar ekki hrifin, ekkert af þessu nær að heilla forstjórann sem setur á mikla ræðu á Facebook-síðu sinni. Þar beinir hann spjótum sínum að ritstjórnargrein sem hann las í Morgunblaðinu og í raun dregur hann Ridley og það sem hann hefur fram að færa sundur og saman í háði. Að hætti hússins. „Samkvæmt þessari kenningu ættu að vera orsakatengsl milli litar fífilsins í garðinum mínum og stjórnmálaskoðana Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. Til þess að geta afsannað þessa kenningu þyrftum við að hafa gögn um allt sem er og allt sem hefur verið í heiminum og öflun slíkra gagna er langt utan seilingar og þess vegna er ekki hægt afsanna kenninguna.“ Ekki mikið mark á þessu takandi Kári telur sem sagt ekki mikið mark á þessu takandi. Hann tekur undir að það þurfi að rannsaka þetta nánar og ráð væri að setja upp farsóttastofnun sem rannsakaði reynsluna af Covid-19, farsóttir fyrri tíma og þær sem eiga eftir að herja á mannkyn. Kostnaðurinn yrði líkast til mikill en þó hverfandi miðað við þann sem hlytist af því að spinna viðbrögð við næsta faraldri af fingrum fram, svo notað sé orðalag Kára. Kári Stefánsson gefur lítið fyrir kenningar Matt Ridleys, telur þær skemmtilegar en sem vísindi sé ekkert mark á þessu takandi.vísir/vilhelm Það sem Kári hefur helst út á kenningar Matts að setja er að þær séu ekki vísindalegar að því leiti að þær sé ekki hægt að afsanna. Og séu þannig einfaldlega tilgátur. „Þær eru hins vegar, sumar þeirra býsna skemmtilegar og skyldi engan furða, vegna þess að þegar maður hefur engin gögn til þess að vísa veginn hefur maður frelsi til þess að fara í hvaða átt sem manni sýnist. Svo er það hitt að við vitum ekki gjörla um uppruna einnar einustu veiru sem hefur lagst á menn og valdið faröldrum meðal annars vegna þess að veirur verða aldrei til í eitt skiptið fyrir öll. Kínverski kommúnistaflokkurinn eins og hann er Veirur halda áfram að endurskapast af völdum stökkbreytinga í erfðamengi þeirra og vals af hálfu umhverfisins sem í þessu tilfelli er allt sem gefur að líta í líkama mannsins. Þess vegna er það ekki furðulegt að vísindamenn sýni kenningum um uppruna veirunnar lítinn áhuga, þær eru ekki vísindalegar vegna þess að það er ekki hægt að afsanna þær.“ Þar af leiðandi hafi þetta sem stendur ekki neitt með vísindi að gera. Og þar spilar inní að kínversk stjórnvöld eru ekkert lambið að leika sér við. „Kínversk stjórnvöld haga sér gjarnan þannig að það er ógerlegt að spá fyrir um það hvers vegna þau veita ekki aðgang að þessum gögnum og vafasamt að draga þá ályktun að það sé vegna þess að gögnin bendi til þess að veiran eigi einhverjar rætur í kínverskri rannsóknarstofu. Alræðisvald kínverska kommúnistaflokksins er ógeðfellt og illvirki hans mörg og ljót en Covid-19 faraldurinn er að öllum líkindum ekki eitt af þeim.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Vísindi Bókaútgáfa Bókmenntir Fjölmiðlar Samfélagsmiðlar Kína Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Sjá meira