Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Ráðamenn í Kína hafa sent skilaboð til ráðamanna í Íran og beðið klerkastjórnina um hjálp við að halda aftur af Hútum í Jemen. Það er eftir að ríkisstjórn Sádi-Arabíu, sem selur talsvert af olíu til Kína, bað Kínverja um aðstoð. Árásir Húta á olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu og lokun sunnanverðs Rauðahafs fyrir siglingum Sáda hafa komið verulega niður á getu konungsríkisins til að flytja olíu úr landi. Erlent 18.9.2026 10:01
Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi frumvarp sem snýst um umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Frumvarpið var lagt fram af hinum látna öldungadeildarþingmanni Lindsey Graham fyrir nærri því einu og hálfu ári síðan. Erlent 17.9.2026 07:52
Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Ég keypti mér nýverið stóran dall af fæðubótarefninu kreatíni – ég hafði heyrt að það væri miðaldra konum allra meina bót. Þegar efnið fór að valda mér óþægindum í maga gerði ég það sem hvaða heilvita manneskja hefði gert: Ég fór aftur í búðina og keypti dall af ennþá dýrara kreatíni. Lífið 17.9.2026 07:02
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent 14.9.2026 19:02
Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Tveimur mönnum hefur verið bjargað lifandi úr vatnsaflsvirkjunargöngum í Nepal, níu dögum eftir að mannskæð skyndiflóð grófu virkjunarmannvirki í djúpa leðju. Talið er að hundruð verkamanna hafi lokast inni í kjölfar flóðanna. Flóðið varð í kjölfar þess að jökull hrundi saman á landamærum Nepal og Tíbet, sem er undir stjórn Kína. Erlent 4. september 2026 06:28
Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Manntjón í Nepal vegna gríðarlegra flóða við landamærin að Tíbet er komið í 987 samkvæmt almannavarnayfirvöldum landsins. Erlent 1. september 2026 07:52
Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Yfirvöld í Kína hafa staðfest örfá dauðsföll í Tíbet vegna flóðbylgjunnar og aurskriðanna í síðustu viku. Hundraða er enn saknað en erfitt er að komast að bænum sem varð hvað verst úti á svæðinu. Erlent 31. ágúst 2026 10:36
Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Yfirvöld í Kína hafa gert bílaframleiðendum að innkalla um 4,3 milljónir rafmagnsbíla þar í landi vegna innfelldra hurðahúna. Þeir hafa verið bannaðir í Kína en eftir að hurðahúnarnir hafa verið bendlaðir við dauðsföll í tveimur slysum í Kína hefur aukinn þrýstingur verið settur á forsvarsmenn bílafyrirtækjanna um að bæta hönnun bílanna og þá sérstaklega hurðahúnanna. Viðskipti erlent 24. ágúst 2026 08:55
TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Samfélagsmiðillinn TikTok hefur samþykkt að greiða Bandaríkjunum fjögur hundruð milljónir Bandaríkjadala, eða um 49 milljarða íslenskra króna, til að ljúka málsókn en miðillinn var sakaður um að brjóta á friðhelgi barna með upplýsingaöflun. Sáttin er ein sú stærsta sem hefur verið gerð vegna slíks máls. Erlent 21. ágúst 2026 23:19
Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Ríkisstjórn Taívan lagði í gær fram fjárlagafrumvarp sem felur í sér gífurlega aukningu í útlátum til varnarmála. Aukningin samsvarar átján prósentum á milli ára og verði frumvarpið samþykkt mun eyríkið verja 3,1 prósenti af landsframleiðslu til varnarmála. Til stendur að hækka hlutfallið enn frekar vegna hernaðarógnana frá Kína. Erlent 21. ágúst 2026 15:18
Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Stofnandi kínverska fjárfestinga- og fasteignafélagsins Evergrande Group hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hui Ka Yan var um tíma auðugasti maður Asíu en fall Evergrande, sem var einn af hornsteinum kínverska hagkerfisins, hafði umfangsmikil áhrif á Kína og varð að eins konar táknmynd fyrir vandræði á fasteignamarkaði Kína. Viðskipti erlent 20. ágúst 2026 13:50
Lentu geimflaug í fyrsta sinn Kínverjum tókst í fyrsta sinn í dag að lenda fyrsta þrepi geimflaugar aftur á jörðinni. Hingað til hafa Bandaríkjamenn og þá fyrirtækin SpaceX og Blue Origin verið einu aðilarnir sem hafa búið yfir slíkri tækni, sem dregið getur verulega úr kostnaði við að koma farmi á braut um jörðu. Erlent 19. ágúst 2026 15:51
Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Stjórnvöld á Taívan stóðu í gær fyrir æfingu á fjarskiptatruflunum í kjölfar ímyndaðrar árásar eða innrásar af hálfu Kína. Æfingar vegna mögulegrar árása Kínverja eru reglubundin viðburður en þetta var fyrsta æfing Taívana þar sem gert var ráð fyrir umfangsmiklum fjarskiptatruflunum. Erlent 11. ágúst 2026 10:03
Tollar kísilframleiðslu í Kína Donald Trump tilkynnti í gærkvöldi tolla á fjölkristallaðan kísil og kísilafurðir frá Kína sem notaðar eru í framleiðslu sólarrafhlaðna og hálfleiðara. Markmiðið með þessum fimmtán prósenta tollum er að ýta undir innlenda framleiðslu í Bandaríkjunum en hann tekur þó ekki gildi fyrr en eftir þingkosningarnar í nóvember en kjósendur vestanhafs hafa ítrekað kvartað yfir hækkandi verðlagi í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 7. ágúst 2026 09:44
AGS og gengismálin: Enn er verk að vinna Þótt besta leiðin til að takast á við slíkt ójafnvægi sé að laga undirliggjandi veikleika í innlendri efnahagsstefnu þýðir það ekki að mat á of- eða vanmati gjaldmiðla hafi ekki mikilvægt upplýsingagildi. Það verður ekki nægilega undirstrikað að renminbi er gjaldmiðill sem kínversk stjórnvöld stýra með mjög virkum hætti. Umræðan 31. júlí 2026 11:26
Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Hópur bandarískra þingmanna hefur farið fram á við ríkisstjórn Donalds Trump að refsiaðgerðum verði beitt til að reyna að stöðva umfangsmiklar og oft ólöglegar veiðar Kínverja sem kallaðar eru „vistmorð“. Peningar sem áttu að fara í eftirlit með þessum veiðum fóru í allt annað. Erlent 24. júlí 2026 14:50
Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Air China hefur hafið sölu á flugferðum frá Keflavík til Peking, höfuðborgar Kína. Jómfrúarflugið verður 26. október næstkomandi en Air China er eitt stærsta flugfélag heims og ríkisflugfélag Kína. Innlent 23. júlí 2026 12:00
Óttast kínverska gervigreind Forsvarsmenn bandarískra gervigreindarfyrirtækja eins og OpenAI og Anthropic hafa varað ráðamenn þar í landi við hraðri framþróun gervigreindar í Kína. Í Washington DC stendur nú yfir umræða um það hvort að mögulega eigi að banna bandarískum fyrirtækjum að nota kínverska gervigreind. Viðskipti erlent 21. júlí 2026 14:53
Vinsælasta kvikmyndin í Kína er um kvennafótbolta og kungfú Kvikmyndaleikstjórinn Stephen Chow frá Hong Kong er mættur aftur með nýja kvikmynd og nú hefur hann kvennaknattspyrnulið að stjörnum sínum. Myndin er vinsæl en viðbrögðin frá Suður-Kóreu eru allt önnur þar sem vonda liðið í myndinni kemur þaðan. Fótbolti 20. júlí 2026 15:32
Auka þrýstinginn á Taívan verulega Yfirvöld í Taívan segja ferðum skipa Strandgæslu Kína og kínverskra rannsóknarskipa kringum eyjuna hafa fjölgað mjög. Kínverjar séu að auka þrýstinginn á eyríkið verulega og mögulega að undirbúa að setja Taívan í herkví, ef til átaka kemur. Erlent 20. júlí 2026 10:50
Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fyrirhugaðar flugferðir Air China frá Kína til Íslands breyta miklu. Mögulegt sé að fjöldi kínverskra ferðamanna gæti tvöfaldast á tiltölulega stuttum tíma en þeir mynda nú þegar einn stærsta ferðahópinn hérlendis á vissum árstíma. Á sama tíma muni fjölguninni mögulega fylgja áskoranir, til að mynda í tengslum við fyrirtæki sem fari á svig við íslenskar venjur og regluverk. Viðskipti innlent 12. júlí 2026 00:01
Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Síðustu ár hafa reglulega borist fréttir af því að fyrirhugað sé að koma á beinu flugi milli Kína og Íslands en nú er útlit fyrir að fréttirnar verði loks að veruleika. „Stutt er í að dagsetning fyrsta flugsins verði kynnt og sala miða hefjist,“ segir Kínverska sendiráðið á Íslandi í svari við fyrirspurn fréttastofu. Innlent 11. júlí 2026 17:00
Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Kínversk yfirvöld hafa staðfest að fimmtán manns hafi látist og að níu sé saknað í tengslum við mikið óveður sem þar gengur yfir. Mikill vindur og úrkoma hefur leitt til mikilla aurskriða og flóða í landinu. Erlent 7. júlí 2026 06:15
Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Kínverjar skutu langdrægri eldflaug með gervi kjarnaoddi í Kyrrahaf í morgun en um er að ræða fyrstu tilraunir Kínverja með langdrægar eldflaugar frá árinu 2024. Fyrir þann tíma höfðu Kínverjar ekki tilkynnt um tilraunir með langdrægar flaugar í yfir fjörtíu ár. Erlent 6. júlí 2026 07:17
Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Söngkonan Laufey Lín er lofsungin af starfsmönnum kínverska sendiráðsins á Íslandi. Laufey Lín er stödd í Kína þessa dagana á tónleikaferðalagi. Tónlist 27. júní 2026 14:02