Lífið

Unn­steinn og Ágústa eignuðust dóttur

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Unnsteinn Manuel þegar hann tróð upp á Kryddsíldinni árið 2021.
Unnsteinn Manuel þegar hann tróð upp á Kryddsíldinni árið 2021. Vísir/Hulda Margrét

Tónlistar- og sjónvarpsmaðurinn Unnsteinn Manuel Stefánsson og vöruhönnuðurinn Ágústa Sveinsdóttir hafa eignast dóttur. Þetta kemur fram í einlægri færslu á samfélagsmiðlum þar sem fram kemur að stúlkan hafi fæðst í maí síðastliðnum.

Um er að ræða þeirra annað barn en í Instagram færslunni segja þau frá því hvað sú litla heitir. „Dóttir okkar Saga Ximinha Unnsteinsdóttir kom í heiminn 10.maí síðastliðinn. Móður og barni heilsast vel,“ skrifar Unnsteinn í færslunni.

Heitir í höfuðið á ömmu sinni

„Hún fær nafn ömmu sinnar frá Angola. Ekki biblíunöfnin Ana og Maria heldur afríska nafnið Ximinha. Amma hennar bar aðeins þetta nafn fyrstu 12 ár ævi sinnar þangað til hún var send til Portúgal og tók upp portúgalskt nafn.“

Unnsteinn útskýrir að orðið Ximinha, sem borið er fram sem Símínja, sé úr tungumáli Kimbundu ættbálksins. Það komi af orðinu Muxima sem þýði hjarta. „Ximinha þýðir því „litla hjarta,“ skrifar Unnsteinn á einlægum nótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.