Lífið

Ástin blómstrar hjá Birki Blæ og Ás­dísi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Birkir Blær og Ásdís eru nýtt par.
Birkir Blær og Ásdís eru nýtt par. Instagram skjáskot

Rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Birkir Blær Ingólfsson hefur fundið ástina hjá fimleikadrottningunni og sjúkraþjálfaranum Ásdísi Guðmunsdóttur. Samkvæmt heimildum Lífsins byrjaði parið að stinga saman nefjum fyrr í sumar. 

Sést hefur til þeirra víða um borgina og virðist ástin blómstra. 

Birkir Blær og Ásdís eru glæsilegt par.Skjáskot/Instagram

Ásdís Guðmunsdóttir var lengi vel afrekskona í fimleikum og er hvorki meira né minna en tvöfaldur Evrópumeistari ásamt liði sínu Gerplu og hefur sömuleiðis þjálfað fimleika. Hún starfar nú sem sjúkraþjálfari. 

Birkir Blær hefur vakið athygli fyrir skrif sín og tónlist og hlaut meðal annars Íslensku barnabókaverðlaunanna árið 2018 fyrir bók sína Stormsker - Fólkið sem fangaði vindinn. Hann er meðlimur sveitarinnar Böss sem hefur frumsýnt tónlistarmyndband hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.