„Ég á ekki til orð Lárus Orri“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2024 11:01 Lárus Orri Sigurðsson og Albert Brynjar Ingason voru ekki sammála um eitt stórt atvik í leik Stjörnunnar og Breiðabliks. Stöð 2 Sport Blikum þótti á sér brotið í leiknum á móti Stjörnunni en samkvæmt sérfræðingum Stúkunnar sluppu Blikarnir kannski bara vel frá þessum leik.
Stjarnan og Breiðablik gerðu 2-2 jafntefli í átjándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta þar sem bæði liðin komust yfir í leiknum. Það var hart tekist á í leiknum og spennustigið var hátt. „Þegar Blikar jöfnuðu þá vildu Stjörnumenn fá aukaspyrnu,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, umsjónarmaður Stúkunnar, og sýndi atvikið þegar Viktor Örn Margeirsson virtist brjóta á Örvari Eggertssyni fyrir framan vítateig Blika. Blikar fóru í sókn og jöfnuðu metin í 1-1. Þetta er bara brot, aukaspyrna og rautt spjald „Dóri [Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks] talaði um það að þegar dómararnir myndu horfa aftur á leikinn þá yrði það óþægilegt fyrir þá því þeir hefðu gert of mikið af mistökum,“ sagði Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur Stúkunnar. „Ég held ef Dóri hefði horft aftur á leikinn þá hugsar hann að þeir hafi bara sloppið ágætlega miðað við dómana. Þetta er klárt brot. Viktor er ekki einu sinni að reyna við boltann þarna. Þetta er bara brot, aukaspyrna og rautt spjald. Svo fá þeir mark í andlitið þannig að Blikar eru að sleppa ágætlega frá þessum leik,“ sagði Albert. Ekki sammála Lárus Orri Sigurðsson, hinn sérfræðingur Stúkunnar í þættinum, var ekki alveg sammála kollega sínum og sagðist hafa horft á þetta mörgum sinnum án þess að vera fullviss um að það hafi verið snerting. „Ég á ekki til orð Lárus Orri,“ sagði Albert en auðvitað rífast þeir Albert og Lárus aðeins um þetta atvik en það er ekkert nýtt. Það má horfa á umræðuna um þetta atvik hér fyrir neðan. Klippa: Stúkan: Brot eða ekki brot í aðdraganda jöfnunarmarks Blika
Besta deild karla Stúkan Breiðablik Stjarnan Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira