KR-ingar með fæst stig úr innbyrðis leikjum neðstu liðanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. ágúst 2024 13:47 KR-ingar hafa fengið á sig yfir tvö mörk að meðaltali í leik á móti neðstu liðum deildarinnar. Vísir/Diego KR hefur tapað á móti Vestra og HK í síðustu tveimur leikjum sínum og það þýðir að ekkert lið er með slakari árangur í innbyrðis leikjum fallbaráttuliðanna í Bestu deildinni í sumar. Eftir 3-2 endurkomu HK á KR í Kórnum í gær munar aðeins tveimur stigum á KR (18 stig) í níunda sætinu og Fylki (16 stig) sem situr í botnsætinu. Vestri og HK eru bæði með sautján stig. Það stefnir því í æsispennandi fallbaráttu í haust. KR fékk tvo leiki á móti liðum úr þessum hópi á síðustu viku til að losna við fallbaráttudrauginn úr Vesturbænum en uppskeran úr leikjunum við Vestra og HK var núll stig og þrjú mörk í mínus. Það þýðir jafnframt að KR er með lélegasta árangurinn í innbyrðis leikjum þessara fjögurra neðstu liða deildarinnar. KR-ingar hafa aðeins náð að vinna einn af sex leikjum sínum á móti Vestra (1 stig í húsi), HK (0 stig) og Fylki (4 stig). Liðið vann Fylki í fyrstu umferðinni en hafa síðan spilað fimm leiki við fyrrnefnd lið án þess að fagna sigri. KR hefur fengið á sig fjórtán mörk í þessum sex leikjum sínum við neðstu liðin eða 2,3 mörk að meðaltali í leik. Fylkir fékk kannski bara eitt stig á móti KR en hefur unnið hina þrjá leiki sína. Liðið á líka eftir að spila við Vestra á Ísafirði áður en deildinni verður skipt upp. HK hefur aftur á móti náð í sex af sjö stigum sínum úr leikjunum við KR. Uppskeran úr leikjum við Vestra og Fylki er aðeins eitt stig af tólf mögulegum. Stig í innbyrðis leikjum fallbaráttuliðanna fjögurra: 1. Fylkir 10 stig (Markatala: +4, 13-9) 2. Vestri 8 stig (+2, 8-6) 3. HK 7 stig (-3, 7-10) 4. KR 5 stig (-3, 11-14) Besta deild karla KR HK Vestri Fylkir Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Sjá meira
Eftir 3-2 endurkomu HK á KR í Kórnum í gær munar aðeins tveimur stigum á KR (18 stig) í níunda sætinu og Fylki (16 stig) sem situr í botnsætinu. Vestri og HK eru bæði með sautján stig. Það stefnir því í æsispennandi fallbaráttu í haust. KR fékk tvo leiki á móti liðum úr þessum hópi á síðustu viku til að losna við fallbaráttudrauginn úr Vesturbænum en uppskeran úr leikjunum við Vestra og HK var núll stig og þrjú mörk í mínus. Það þýðir jafnframt að KR er með lélegasta árangurinn í innbyrðis leikjum þessara fjögurra neðstu liða deildarinnar. KR-ingar hafa aðeins náð að vinna einn af sex leikjum sínum á móti Vestra (1 stig í húsi), HK (0 stig) og Fylki (4 stig). Liðið vann Fylki í fyrstu umferðinni en hafa síðan spilað fimm leiki við fyrrnefnd lið án þess að fagna sigri. KR hefur fengið á sig fjórtán mörk í þessum sex leikjum sínum við neðstu liðin eða 2,3 mörk að meðaltali í leik. Fylkir fékk kannski bara eitt stig á móti KR en hefur unnið hina þrjá leiki sína. Liðið á líka eftir að spila við Vestra á Ísafirði áður en deildinni verður skipt upp. HK hefur aftur á móti náð í sex af sjö stigum sínum úr leikjunum við KR. Uppskeran úr leikjum við Vestra og Fylki er aðeins eitt stig af tólf mögulegum. Stig í innbyrðis leikjum fallbaráttuliðanna fjögurra: 1. Fylkir 10 stig (Markatala: +4, 13-9) 2. Vestri 8 stig (+2, 8-6) 3. HK 7 stig (-3, 7-10) 4. KR 5 stig (-3, 11-14)
Stig í innbyrðis leikjum fallbaráttuliðanna fjögurra: 1. Fylkir 10 stig (Markatala: +4, 13-9) 2. Vestri 8 stig (+2, 8-6) 3. HK 7 stig (-3, 7-10) 4. KR 5 stig (-3, 11-14)
Besta deild karla KR HK Vestri Fylkir Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Sjá meira