Líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga Golfvöllur vikunnar 28. ágúst 2024 08:32 Háagerðisvöllur, sem er skammt frá Skagaströnd, var tekinn í notkun vorið 1991 og er 9 holu völlur, par 36 (72). Völlurinn hentar bæði byrjendum og reyndari kylfingum. Golfklúbbur Skagastrandar var stofnaður árið 1985 en Háagerðisvöllur var tekinn í notkun vorið 1991. Völlurinn, sem er 4 km norðan við Skagaströnd, er 9 holur og par 36 (72). Hann hentar byrjendum jafnt sem reyndari kylfingum. Hönnuður vallarins er Hannes Þorsteinsson.
Í sumar ætlum við að kynnast nokkrum af þeim fjölda spennandi golfvalla sem hægt er að finna víða um land og gaman væri að prófa í sumarfríinu en hægt er að leika golf á yfir 60 völlum hér á landi. Háagerðisvöllur er golfvöllur vikunnar á Vísi. Séð upp braut 9. Spákonufell í baksýn. Klettar og mishæðótt landslag frá náttúrunnar hendi gera brautirnar krefjandi og fjölbreyttar. Á góðum degi er frábært útsýni út á Húnaflóa og yfir á Strandir. Við hverja braut er skilti með upplýsingum um brautina ásamt smá fróðleik. Í bók sinni Golfhringir á Íslandi, sem kom út árið 2002, segir Edwin Roald Rögnvaldsson m.a. að Háagerðisvöllur sé líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga á Íslandi Hann tekur sem dæmi fimmtu braut, sem er par 5, og er að hans mati besta golfbrautin á Skagaströnd. „Til að komast inn á flöt í öðru höggi þarf tvö fullkomin högg. Þær eru fáar, par 5-holurnar, sem falla jafnvel í landslagið, alveg frá teig til flatar. Landslagið í brautinni sjálfri er frá náttúrunnar hendi – öldótt og óreglulegt – sem er allt of fátítt á golfvöllum sem byggðir hafa verið í seinni tíð.“ Við teigana á hverri braut eru skilti með upplýsingum um brautina og annar fróðleikur. Mynd 6: Fjórða flötin er í skemmtilegu náttúrulegu umhverfi. Á Skagaströnd er ýmis þjónusta í boði. Má þar nefna Harbour restaurant, Salthús gistiheimili, notalega sundlaug, leigu á kajökum og Spákonuhof þar sem hægt er að fræðst um Þórdísi spákonu og fá framtíðarspá. Einnig er gott tjaldsvæði á staðnum og skemmtilegar gönguleiðir á svæðinu, m.a. upp á Spákonufell sem er 640 m hátt. Á fögrum sólardegi. Golfarar að ljúka leik.
Golf Golfvellir Mest lesið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Tár eftir hverja sýningu Lífið Ómetanlegt að hafa sagt frá átröskuninni Lífið Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Gjöfull trekantur Menning „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Lífið samstarf Fleiri fréttir Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira