Lífið

Fagnar átta árum án hugbreytandi efna

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Tónlistarkonan Elín Ey hefur verið án hugbreytandi efna í átta ár.
Tónlistarkonan Elín Ey hefur verið án hugbreytandi efna í átta ár. Skjáskot

Tónlistarkonan og Eurovision-farinn, Elín Eyþórsdóttir, fagnaði þeim tímamótum í gær að hafa verið án hugbreytandi efna í átta ár. Elín greindi frá þessu á Instagram-síðu sinni og hamingjuóskum rignir yfir hana.

„Átta ár án vímuefna og áfengis. Skál fyrir því,“ skrifaði Elín.

Unnusta Elínar, listarkonan Íris Tanja FLygenring, stendur þétt við bakið á sinni konu: „Best og duglegust og alltaf heitust,“ skrifaði Íris Tanja við færsluna.

Íris Tanja og Elín byrjuðu saman í mars árið 2022, stuttu eftir að Elín vann Söngvakeppni sjónvarpsins ásamt systrum sínum með laginu Með hækkandi sól. Þær systur kepptu síðan fyrir Íslands hönd í Eurovision í Tórínó í maí 2022. 

Í október sama ár fór Íris á skeljarnar og bað um hönd Elínar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×