Sævar Atli skoraði og fiskaði mikilvægt víti fyrir Lyngby Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2024 14:59 Sævar Atli Magnússon skoraði sitt annað mark á tímabilinu en því miður dugði það ekki til að fá stig í dag. Getty/Mike Egerton Sævar Atli Magnússon skoraði mark Lyngby og fiskaði víti undir lokin sem gaf liðinu jöfnunarmarkið og mikilvægt stig í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Lyngby gerði þá 2-2 jafntefli á heimavelli á móti AaB eftir að hafa komist yfir snemma leiks. Eftir leikinn þá er Lyngby í næst neðsta sæti deildarinnar með einn sigur og tíu stig í fimmtán leikjum. AaB er tveimur sætum og sex stigum ofar. Sævar Atli kom sínu liði yfir strax á áttundu mínútu og Lyngby var yfir í 47 mínútur. Leikmenn AaB snéru hins vegar við leiknum með tveimur mörkum á fjórum mínútum. Það fyrra skoraði John Iredale en það seinna gerði Melker Widell. Lyngby menn gáfust ekki upp og gátu þakkað íslenska landsliðsframherjanum fyrir það að stigið kom í hús. Sævar Atli fiskaði vítaspyrnu á lokamínútunum og úr henni skoraði Frederik Gytkjær jöfnunarmarkið. Sævar fiskaði líka í leiðinni einn leikmann AaB af velli með rautt spjald. Þetta var annað mark Sævars Atla á tímabilinu en hann skoraði einnig í 1-1 jafntefli við Randers í byrjun október.
Danski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira