Varð að segja af sér ráðherradómi vegna vanhæfi – Er nú þrefaldur ráðherra, líka forsætisráðherra Ole Anton Bieltvedt skrifar 13. nóvember 2024 06:02 Stundum eru menn að tala um bananalýðveldi. Svona í háði og með lítilsvirðingu. Þau eiga víst að vera helzt í Afríku og á öðrum framandi slóðum. En, þurfum við að leita svo langt til að finna eitt? Bjarni Benediktsson, sem verið hefur áhrifamesti stjórnmálamaður landsins síðustu 10 árin - var undarlegt nokk til þess valinn af umtalsverðum hluta þjóðarinnar - , varð að segja af sér ráðherradómi, fjármálaráðherraembættinu, í október í fyrra, vegna vanhæfi. Sá, sem kvað upp þann dóm, að Bjarni væri vanhæfur, var ekki minni maður en Umboðsmaður Alþingis. Af þessu tilefni sagði Bjarni 10. október í fyrra: „ Ég tel mikilvægt að virða álit Umboðsmanns Alþingis, sem er sérstakur trúnaðarmaður þingsins“. Vel mælt, en meining greinilega lítil. 14. október, líka í fyrra, sagði Bjarni af sér embætti fjármálaráðherra, en einhenti sér, í sömu svipan, sama dag, í embætti utanríkisráðherra. Vanhæfur, sem sagt, í eitt ráðherraembætti, en flottur í annað. Nú, sem helzti fulltrúi þjóðarinnar víða um heim. Ein flott íslenzk flétta. A la Bjarni Ben og D. Fannst öllum þetta í lagi? Ég leyfi mér að fullyrða, að svona flétta, sem aðeins finnst í lægstu skúffu siðferðis, sæmdar og sjálfsvirðingar, hefði varla geta gerzt í neinu öðru Evrópulandi, alla vega ekki vestrænu, allra sízt öðru norrænu ríki. Sjö norskir ráðherrar hafa orðið að segja af sér síðustu þrjú árin Við teljum Norðmenn náskylda okkur, nána frændur, og, að mikil líkindi séu milli þeirra og okkar. Í stjórnartíð Jonas Gahr Støre, formanns norska verkamannaflokksins og forsætisráðherra Noregs frá því í október 2021, hafa 7 ráðherrar verið neyddir til að segja af sér. Menn kunna að velta því fyrir sér, hverjir það séu og fyrir hvað: Ingvild Kjerkol. Það kom í ljós, að hún hafði notað texta annars manns í sinni meistaragráðuritgerð, án þess að geta þess, við háskólanám, einhverjum áratugum áður. Burt! Sandra Borsch. Sama saga, 10 árum áður. Burt! Anniken Huitfeldt. Eiginmaður hennar hafði stundað umtalsverð hlutabréfaviðskipti meðan hún sat í rikisstjórn. Hún hefði getað lekið einhverjum upplýsingum, sem eiginmaðurinn hefði geta nýtt sér, misnotað, við sín hlutabréfaviðskipti. Slíkt lá þó ekki fyrir. Burt! Ola Borten Moe. Keypti hlutabréf fyrir um 5 milljónir íslenzkra króna í vopnaverksmiðju, sem norska ríkið gerði svo stóran kaupsamning við. Burt! Anette Trettebergstuen. Útvegaði nokkrum vinum sínum, eða mælti með þeim, til opinberra starfa. Misnotkun á valdaaðstöðu. Burt! Odd Roger Enoksen. Hann var varnarmálaráðherra Noregs til 2022. Þá bárust fregnir af því, að hann hefði haldið við miklu yngri konu 22 árum áður, árið 2000. Siðlaust. Burt! Hadia Tajik. Það kom í ljós árið 2022, að hún hafði nýtt sér sérstök skattfríðindi 2006-2010, vegna meintrar búsetu úti á landi þá og kostnaðar við tvöfalt íbúðahald, sem ekki lá að fullu fyrir. Burt! Síðustu 80 árin hafa aðeins sex íslenzkir ráðherrar orðið að segja af sér – tveir hafa þvegið hendur sínar og eru mættir galvaskir til leiks aftur Sjö afsagnir í Noregi á þremur árum, hér hafa aðeins 6 ráðherraafsagnir átt sér stað á öllum lýðveldistímanum; frá 1944. Hvað segir þetta okkur? Ekki skyldi íslenzk spilling vera svarið? Það vekur hér athygli, að tveir ráðherrar, sem voru neyddir til að segja af sér, Sigmundur Davíð, 2016, og Sigríður Andersen, 2019, geysat nú fram á stjórnmálavöllinn með boðskap um að skynsemi, ráðvendni og ábyrgð skuli í hávegum höfð. Sigmundur Davíð hröklaðist frá vegna hneykslismála tengdum Panamaskjölunum og fyrir það, að hafa farið með ósannindi, logið, í Kastljósþætti. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu, að Sigríður hefði brotið lög, valið sína menn, a la D, fremur en þá hæfustu, við ráðningu í mikilvæg dómarastörf. Er þetta allt nú grafið og gleymt? Er Sigmundur Davíð nú allt í einu flottur fýr og Sigríður fyrirmyndarkona? Ný skítaplott Bjarna Ben, Jóns Gunnarssonar og Kristjáns Loftssonar Flestir telja að ráðherraembætti sé fullt verkefni fyrir venjulegan mann, enda fylgir mikil þýðing og ábyrgð störfum ráðherra. Bjarni Ben skellti sér þó ekki aðeins í forsætisráðumeytið, heldur bætti hann við, svona með fingrasmelli og glæsilegri handarsveiflu, fyrst Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og svo Matvælaráðuneytinu, sem lengi var kallað landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti og spannar vítt og breitt. Ekkert mál fyrir Bjarna, hann kippti bara föllnum vini og samherja, Jóni Gunnarssyni, sem þurfti að reisa við, hvort sem var, tryggja góð laun og nota mætti í krítísk verk, skítaverk, enda með bágborna ímynd fyrir, inn í sína D sveit, og fól honum svo eitt ráðuneytið. Matvælaráðuneytið. Það má reyndar um það deila, hvort menn geti tekið að sér svo mörg ráðuneyti, að þeir ráði ekki neitt við neitt, og ráði svo bara menn, líka þá sem telja má með öllu vanhæfa, til að reka ráðuneytin. Hvað skyldi Umboðsmanni Alþingis segja um þessa aðferðafræði? Góð stjórnsýsla!? Burt með þennan mann og hans lið! Í Noregi var ráðherra rekinn fyrir að mæla með eða hlutast til um ráðningu vinar eða vina til ríkisins. Þar þótti það siðlaust og ekki við hæfi, brot á góðri ráherrahandhöfn, en hvað varðaði Bjarna um það. Nú þurfti að plotta fljótt og vel, tryggja traustum stuðningsmanni og fjárhagslegum velunnara Sjálfstæðisflossins hvalveiðileyfi, sem reyndar meirihluti þjóðarinnar er á móti, hvað með það, helzt til eilífðarnóns. Til þess þurfti auðvitað vana menn, þá, sem kunna nokkuð til vafasamra verka, skítaverka, Jón Gunnarsson tryggður, og þá þarf Bjarni bara að fá einhvern meðráðherra í plottið, til að skrifa undir, Bjarni gerir það auðvitað ekki sjálfur. Ég trúi því reyndar ekki, að Þórdís Kolbrún láti til leiðast, þá væri hennar góða ímynd rokin út í veður og vind líka. Það kemur í ljós. Eru menn ekki að verða búnir að fá nóg af Bjarna Ben og þessu spillingar- og klíkuliði!?? Er ekki kominn tími til að hafna honum með öllu og í leiðinni öllu því siðleysi og þeirri spillingu, sem Bjarni Ben og Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir!??? Burt með hann og hans spillta lið, segi ég!! Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Noregur Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Mest lesið Gagnrýnda kynslóðin og glötuðu kennararnir Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Krónunum kastað fyrir aurinn Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Þunginn af áherslu heilbrigðisyfirvalda á líkamsþyngd Berglind Soffía Blöndal,Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir Skoðun Síðustu vígi vísdómsins Sigurður Ingvarsson Skoðun Er gott að búa í Kópavogi? Sigurður Kári Harðarson Skoðun Halldór 28.02.2026 Halldór „Leigupennar“ eða einfaldlega fólk sem vill ræða málið? Daði Freyr Ólafsson Skoðun Beljan og Bertolli Árni Stefán Árnason Skoðun Hrós er ekki bara fyrir byrjendur Ingrid Kuhlman Skoðun Prince Polo, var táknmynd spillingar kommúnismans í Evrópu Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Síðustu vígi vísdómsins Sigurður Ingvarsson skrifar Skoðun „Leigupennar“ eða einfaldlega fólk sem vill ræða málið? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Beljan og Bertolli Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Er gott að búa í Kópavogi? Sigurður Kári Harðarson skrifar Skoðun Þunginn af áherslu heilbrigðisyfirvalda á líkamsþyngd Berglind Soffía Blöndal,Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir skrifar Skoðun Gagnrýnda kynslóðin og glötuðu kennararnir Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Hrós er ekki bara fyrir byrjendur Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Krónunum kastað fyrir aurinn Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Alþjóðleg lög eða ráðleggingar? Marko Medic skrifar Skoðun Kveikt í trúverðugleika Samfylkingarinnar – slökkviliðið er sem betur fer á leiðinni Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Skolfið á beinunum? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar stuðningur skiptir raunverulega máli Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Ekki enn einn skandal, heldur upphaf breytinga Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Hin eilífa kosningabarátta innan KSÍ Sævar Þór Sveinsson skrifar Skoðun Sannleikur um slökkvistöð í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Söguskýringar Samfylkingarinnar Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Nú er tíminn! Ása Valgerður Sigurðardóttir skrifar Skoðun Að standa af sér storminn Gerður Björk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Skaðabótalög – breytingar til hagsbóta fyrir neytendur? Tinna Björk Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fullveldið og 27. greinin Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Prince Polo, var táknmynd spillingar kommúnismans í Evrópu Júlíus Valsson skrifar Skoðun Byggjum framtíð á ís – fyrir börnin okkar og samfélagið allt Anna Maria Hedman skrifar Skoðun Hvað er planið? Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldi er ekki starfslýsing Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gerum okkar besta Ólafur Helgi Jóhannsson skrifar Skoðun Sterkir innviðir skapa sterkt samfélag Arna Rut Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf marga borgarfulltrúa til að skipta um ljósaperu? Páll Edwald skrifar Skoðun Að vera upp á aðra kominn: Hugleiðingar öryrkja Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin hræðist ekki leigupennana Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Þunginn af áherslu heilbrigðisyfirvalda á líkamsþyngd Berglind Soffía Blöndal,Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir Skoðun
Skoðun Þunginn af áherslu heilbrigðisyfirvalda á líkamsþyngd Berglind Soffía Blöndal,Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir skrifar
Skoðun Kveikt í trúverðugleika Samfylkingarinnar – slökkviliðið er sem betur fer á leiðinni Andri Steinn Hilmarsson skrifar
Skoðun Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson skrifar
Þunginn af áherslu heilbrigðisyfirvalda á líkamsþyngd Berglind Soffía Blöndal,Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir Skoðun