Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 19. nóvember 2024 11:03 Daði Freyr stefnir á jólatónleika í Gamla Bíói í desember og flutninga til Íslands. Aðsend „Ég var meira jólabarn þegar ég var barn. Nú á ég tvö börn og þá snúast jólin eiginlega bara um þau,“ segir tónlistarmaðurinn og Eurovision stjarnan Daði Freyr. Daði virðist þó kominn í jólagírinn þar sem hann var að senda frá sér nokkrar jólaábreiður og stendur fyrir jólatónleikum í Gamla bíói í desember. Samhliða því stefnir fjölskyldan á að flytja aftur til Íslands. „
Ég hef alveg haft það á bak við eyrað í langan tíma að gefa út jólaplötu. Ég gaf út fyrsta jólalagið mitt 2018 og ætlaði fyrst að hafa það sem árlega hefð en svo tók bara annað við. Í rauninni er ég að gera hana núna vegna þess að ég er að halda jólatónleika í Gamla Bíó í desember og er þess vegna að gera fullt af jólalögum. Það verða bara tekin jólalög á þessum tónleikum, flest í svona dansútgáfu, svo mér fannst þetta smá no brainer,“ segir Daði um tilkomu væntanlegrar jólaplötu. Hér má heyra ábreiðu Daða Freys af laginu Komdu um jólin: Klippa: Daði Freyr - Komdu um jólin Stærsti Bandaríkjatúrinn til þessa Daði hefur eytt góðum tíma í stúdíóinu að undanförnu eftir vægast sagt viðburðaríkt ár. „Ég tók stærsta Bandaríkjatúr sem ég hef tekið, einn og hálfur mánuður af uppseldum tónleikum út um allt þar. Það var mjög gaman, svo tók ég líka tvær stórar tónlistarhátíðir þar í sumar. Annars er ég mikið búinn að vera að einbeita mér að því að semja núna undanfarið fyrir næstu plötu. Þetta er í fyrsta skiptið þar sem ég er að leyfa mér að einbeita mér algjörlega að því bara að semja og ekki gera 100 hluti í einu. Næsta plata verður eitthvað.“ Daðo á tónlistarhátíð í Gdansk í Póllandi á dögunum.Karol Kacperski Söngur, dans og sviti í jólafjöri Hann segist hlakka mikið til að koma heim í desember. „Ég get ekki beðið eftir þessum tónleikum. Þegar ég hélt jólatónleika síðast 2018 var það með skemmtilegustu tónleikum sem ég hafði spilað, allir að syngja með og dansa og svitna. Ég ætla að taka sama konsept og síðast en bara gera þetta miklu meira alvöru. Betri framleiðsla, meiri ljós, stærri salur, meira gaman.“ Aðspurður hvort hann sé með einhverjar órjúfanlegar jólahefðir segir Daði: „Ekkert sem er ekki bara partur af venjulegum íslenskum jólum held ég. Við hlustum á klukkurnar hringja inn jólin og þá knúsast allir og segja gleðileg jól. Annars er þetta aðallega bara kósí.“ Daði hlakkar til að dansa inn jólin í Gamla bíói.Mmurawski Heljarinnar breyting í aðsigi Það er heilmikið á döfinni hjá Daða. „Ég ætla að klára plötuna fyrri part næsta árs og vonandi kemur hún út á næsta ári líka. Svo sé ég fyrir mér að taka einn Evróputúr auk þess að spila á festivölum um sumarið. Annars er það stærsta í þessu að við erum að stefna á að flytja til Íslands aftur, í fyrsta skipti í tíu ár svo það verður heljarinnar breyting. Ég ætla að setja upp góða vinnuaðstöðu þar og halda áfram mínu striki í tónlistinni en prófa að gera það frá Íslandi,“ segir Daði Freyr fullur tilhlökkunar að lokum. Hér má finna nánari upplýsingar um tónleikana.
Tónleikar á Íslandi Jól Eurovision Íslendingar erlendis Mest lesið Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Menning Ástin blómstrar hjá Arndísi Önnu og Lindu Lífið Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Menning Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Lífið Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Tíska og hönnun Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Lífið Taka í gegn fjölskylduhús í Eyjum með einstöku útsýni Lífið Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Tónlist Heitustu pörin í húrrandi jólagír Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Bjallaði í eitt virtasta tónskáld Kasakstan Patti Smith heldur tónleika í Hörpu og Hofi Reggí-risinn Jimmy Cliff allur Lifandi tónlist beint í æð allan ársins hring Hlýja og nánd heima og uppi á sviði Gæsahúð gekk á milli gesta á Stuðmönnum Lög sem mönnum yrði slaufað fyrir í dag Frumsýning á Vísi: Fögnuðu nýjum lífstíl Lítið mál að trylla lýðinn kasólétt Fagnar fimmtugsafmæli með fyrstu tónleikum Ampop í átján ár Tók málin í eigin hendur og stofnaði nýja metal-hátíð á Selfossi Una Torfa heillaði baðgesti upp úr sundskónum Áhrifamikill óður til Grindvíkinga Sjá meira