Sport

Skúbbaði í miðju kyn­lífi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Adam Schefter er aldrei með símann langt frá sér því það er alltaf von á skúbbi.
Adam Schefter er aldrei með símann langt frá sér því það er alltaf von á skúbbi. Getty/Slaven Vlasic

Adam Schefter er einn af frægustu fréttamönnunum í bandarískum íþróttum enda duglegur að koma fyrstur fram með fréttirnar. Hann leggur líka mikið upp úr því að skúbba.

Schefter sagði sögu frá einni fréttinni sem þurfti að komast sem fyrst í loftið.

Schefter fékk þá skilaboð þegar hann var upptekinn í svefnherberginu.

Það stoppaði þó ekki kappann að skúbba á samfélagsmiðlum sínum þótt hann væri í miðju kynlífi.

„Ég var,“ sagði Adam Schefter en komst ekki lengra áður en hann skellti upp úr.

„Ég hafði þarna átt náin kynni með konu í fyrsta skiptið og fékk textaskilaboð um að Dale Carver hafði verið settur í átta leikja bann fyrir neyslu ólöglegra efna,“ sagði Schefter.

„Ég kom fréttunum út þar sem ég lá þarna. Ég kláraði bæði verkefnin sama hvernig þú lítur á það“ sagði Schefter léttur.

Hér fyrir neðan má sjá hann segja söguna af þessu kvöldi sínu.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×