Formúla 1

Hamilton vildi hætta eftir Brasilíu­kapp­aksturinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lewis Hamilton kveður Mercedes eftir tímabilið. Þrjár keppnir eru eftir af því.
Lewis Hamilton kveður Mercedes eftir tímabilið. Þrjár keppnir eru eftir af því. getty/Kym Illman

Breski ökuþórinn Lewis Hamilton vildi hætta hjá Mercedes eftir kappaksturinn í Brasilíu í byrjun mánaðarins.

Hamilton endaði í 10. sæti í brasilíska kappakstrinum. Hann var verulega pirraður með gang mála og í talstöðinni þakkaði hann samstarfsmönnum sínum fyrir ef þetta reyndist vera síðasti kappakstur hans.

Þegar sjöfaldi heimsmeistarinn var spurður út í þessi ummæli sagðist hann hafa íhugað að hætta hjá Mercedes eftir keppnina í Brasilíu. 

„Á þessu augnabliki leið mér þannig. Ég vildi eiginlega ekki snúa aftur eftir þessa helgi. Í hita augnabliksins vildi ég miklu frekar slappa af á ströndinni en að gera þetta,“ sagði Hamilton.

„En ég er hér. Ég elska þetta starf og ætla að gefa allt sem ég á í síðustu keppnirnar og enda vel. Það var alltaf stefnan.“

Hamilton yfirgefur Mercedes eftir tímabilið og gengur í raðir Ferrari. Hann hefur ekið fyrir Mercedes í tólf ár.

Hamilton snýr aftur á brautina um helgina þegar kappaksturinn í Las Vegas fer fram. Þar getur Max Verstappen tryggt sér heimsmeistaratitilinn fjórða árið í röð. Hamilton er í 7. sæti í keppni ökuþóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×