Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Sindri Sverrisson skrifar 23. nóvember 2024 11:29 Gylfi Þór Sigurðsson í Víkinni, sem ekki verður hans heimavöllur næsta sumar nema eitthvað breytist. vísir/Diego Víkingar gerðu Valsmönnum tilboð í Gylfa Þór Sigurðsson sem að sögn formanns knattspyrnudeildar Vals var svo óraunhæft að menn litu á það sem grín.
Gylfi, sem er 35 ára gamall, var sennilega besti maður Vals í sumar og skoraði 11 mörk í 19 deildarleikjum fyrir liðið, á sinni fyrstu leiktíð í efstu deild hér á landi. Í lok tímabilsins gaf hann til kynna að hann myndi mögulega leggja skóna á hilluna, og hann gaf svo ekki kost á sér í landsleiki Íslands við Svartfjallaland og Wales í þessum mánuði. Gylfi, sem er markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi með 27 mörk í 83 leikjum, er hins vegar með samning við Val sem gildir út næstu leiktíð. Hann mun því að óbreyttu spila með liðinu í Bestu deildinni næsta sumar, sem og í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu og í Mjólkurbikarnum. Ekki raunsætt að fá Gylfa á lágu verði Víkingar hafa áhuga á að fá Gylfa í sínar raðir og reyndu að fá hann fyrir nýafstaðið tímabil, þegar Gylfi hafði ákveðið að snúa heim til Íslands. Þeir gerðu svo tilboð í Gylfa nú á dögunum en frá því greindi 433.is í gær. Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, staðfesti þetta svo við Fótbolta.net en sagði tilboðinu hafa verið hafnað og að hann ætti ekki von á frekari viðræðum við Víkinga vegna Gylfa. „Við lítum reyndar meira á það [tilboðið sem barst] sem grín. Ef Víkingur heldur að þeir geti keypt Gylfa á lágu verði þá finnst okkur það ekki raunsætt,“ sagði Björn Steinar við Fótbolta.net.
Besta deild karla Valur Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira