Sport

Hófí Dóra lauk gráðu í líf­tækni og vann svo fyrsta mót í Finn­landi

Sindri Sverrisson skrifar
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir efst á verðlaunapallinum í Finnlandi í gær.
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir efst á verðlaunapallinum í Finnlandi í gær. SKÍ

Ólympíufarinn Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir stóð uppi sem sigurvegari á svigmóti í Finnlandi í gær.

Hólmfríður Dóra var með rásnúmer 16 en náði öðrum besta tímanum eftir fyrri ferð og endaði sem sigurvegari eftir báðar ferðirnar. Frábær byrjun á keppnistímabilinu hjá Hófí Dóru, eins og hún er oft kölluð, og bætti hún FIS punktana sína verulega.

Hún endaði 68/100 úr sekúndu á undan hinni frönsku Cassandre Peizerat og samtals 4,15 sekúndum á undan Tabitha Milkins frá Bretlandi sem hlaut brons.

„Ég er mjög ánægð að byrja tímabilið á sigri hér í Finnlandi,“ segir Hófí Dóra á vef Skíðasambands Íslands, ánægð með byrjunina á vetrinum eftir að hafa nýtt sumarið í að ljúka BS-gráðu í líftækni.

„Það er alltaf frábær tilfinning að sjá mikla vinnu skila sér. Reynslan nýttist mér líka vel þar sem þurfti að halda góðri einbeitingu í gegnum brautirnar,“ segir Hófí Dóra um mótið í Finnlandi. Hún er 26 ára gömul en margir keppenda voru aðeins 16 og 17 ára.

Aðstæður voru afar krefjandi og féll sú úr leik sem var fyrst eftir fyrri ferðina.

„Aðstæður voru góðar en mikill ís og nokkuð sleipur klaki stóran hluta brautarinnar sem gerði þetta afar krefjandi. Það var skemmtilegt að fylgjast með yngstu stelpunum sem eru að keppa á sínu fyrsta ári í FIS, skíða með sjálfstraust niður ísilagðan brattann. Virkilega hvetjandi fannst mér og minnir mann á hversu mikill hæfileiki er innan íþróttarinnar og hversu spennandi framtíð alpagreina er. Annars er ég verulega spennt fyrir keppnistímabilinu og vona að fólk fylgist með okkur í íslenska landsliðinu í vetur,“ segir Hófí Dóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×