Fótbolti

Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við

Sindri Sverrisson skrifar
Thelma Karen Pálmadóttir skoraði í dag og er nú á barmi þess að verða Svíþjóðarmeistari á fyrsta tímabili sínu í atvinnumennsku.
Thelma Karen Pálmadóttir skoraði í dag og er nú á barmi þess að verða Svíþjóðarmeistari á fyrsta tímabili sínu í atvinnumennsku. EPA/ADAM IHSE

Thelma Karen Pálmadóttir fagnaði gegn tveimur liðsfélögum sínum úr íslenska landsliðinu í dag þegar Häcken vann 3-0 sigur gegn Hammarby í algjörum lykilleik í baráttunni um sænska meistaratitilinn í fótbolta.

Það var Thelma Karen sem braut ísinn í leiknum með marki á 11. mínútu og Tabitha Tindell skoraði svo hin tvö mörkin fyrir heimakonur.

Häcken er því með 61 stig á toppnum og nú átta stiga forskot á Hammarby þegar munurinn hefði getað farið niður í aðeins tvö stig með sigri Hammarby í dag.

Aðeins fjórar umferðir eru eftir og því mögulegt að Häcken verði meistari í næstu umferð eftir að hafa orðið meistari í annað sinn á síðustu leiktíð. Thelma Karen er því á barmi þess að verða Svíþjóðarmeistari á sinni fyrstu leiktíð í atvinnumennsku eftir að hafa kvatt FH fyrir tæpu ári síðan.

Guðrún Arnardóttir og Ída Marín Hermannsdóttir voru báðar í liði Hammarb í dag en Ídu var svo skipt af velli á 68. mínútu, í stöðunni 2-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×