Lífið

Sér lífið í nýju ljósi eftir móður­missinn

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Nicole Kidman ræddi opinskátt um lífið og tilvistarkreppu við tímaritið GQ.
Nicole Kidman ræddi opinskátt um lífið og tilvistarkreppu við tímaritið GQ. Karwai Tang/WireImage

Ástralska stórstjarnan Nicole Kidman segist verða hræddari við dauðann með aldrinum og finnur fyrir aukinni tilvistarkreppu. Hún er þó óhrædd við að vera í góðum tengslum við tilfinningar sínar og finna til.

Í samtali við tímaritið GQ ræddi Kidman opinskátt um þetta.

„Lífið, úff. Það er algjörlega ferðalag og lífið nær þér svolítið þegar þú eldist. Ég vakna stundum klukkan þrjú um nótt og fer að hágráta yfir því.“ 

Kidman er gift tónlistarmanninum Keith Urban og þau eiga saman tvær dætur sem eru komnar á unglingsaldur. Hún missti móður sína í haust og segir lífsreynsluna hafa verið mjög mótandi. 

„Það er svo margt sem hefur áhrif á viðhorf manns til lífsins. Að muna að við erum dauðleg. Tengingar við aðra. Þegar lífið valtar yfir þig. Það að missa foreldra, ala upp börn, vera í hjónabandi og allir þessir hlutir sem eru órjúfanlegur partur af þér sem manneskja.“

Hún segir að þessi djúpa tenging við tilfinningalíf sitt komi að góðum notum í leiklistinni. 

„Ég er tilbúin að fara á hvaða stað sem er innra með mér til þess að karaktersköpunin mín verði sönn og djúp.“

Nicole Kidman glæsileg í rauðum Balenciaga síðkjól á Maður ársins viðburði tímaritsins GQ.Karwai Tang/WireImage





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.